St. Georgsdagurinn er 23. apríl ár hvert
Það er því í fyllsta máta eðlilegt, að félagshreyfing sem kennir sig við heilagan Georg minni á tilveru sína og tilgang þann dag og skerpi þá ímynd sem St. Georg hefur í heimi riddaramennskunnar. St. Georgsdagur St. Georgsgildanna er ekki rígbundinn við 23. apríl, en ávallt haldinn í nánd við þann dag, gjarnan sunnudaginn á undan eða eftir.
Sú skemmtilega hefð ríkir hér á Norðurlöndunum, að landsgildi þessara landa hafa séð um það til skiptis að fá einhverja ágætismenn þjóðar sinnar til að semja boðskap helgaðan þessum degi. Það þurfa þeir að gera tímanlega hverju sinni, svo að tími gefist til að senda hann til allra landsgildanna á Norðurlöndum í tæka tíð, bæði svo að hægt sé að þýða hann á tungumál viðkomandi þjóðar, þegar þess þarf með, og til þess að tækifæri gefist til að flytja hann á tilteknum stað á réttum tíma.
Við íslenskir gildisskátar höfum gjarnan komið saman í kirkju og komið þar boðskapnum til skila, en við höfum líka stundum gert það á gildisfundum eða í skátamessu á sumardaginn fyrsta.
Það segir kannski vel um gildi St. Georgsboðskaparins að sjá hverjir hafa skrifað hann síðustu 20 árin, þ. e. 1983 og síðan. Það eru engir aukvisar sem þar hafa lagst á árarnar.
Þeir eru:
- 1983: Benedikta prinsessa, verndari St. Georgsgildisins í Danmörku.
- 1984: Odd Hopp, landsgildismeistari í Noregi.
- 1985: Gunnar Fagerlund, gildismeistari í Helsingfors.
- 1986: Lennert Johannsson, landsgildisstjórnarmaður í Svíþjóð.
- 1987: Páll Gíslason, skátahöfðingi Íslands.
- 1988: Poul Schlüter, forsætisráðherra Danmerkur.
- 1989: Berit Johansen, landsgildismeistari í Noregi.
- 1990: Matti Jaatinen, landsgildismeistari í Finnlandi.
- 1991: Ingvar Carlson, forsætisráðherra Svíþjóðar.
- 1992: Eiður Guðnason, umhverfisráðherra á Íslandi.
- 1993: Leif Bahn, fyrrverandi formaður danska skátaráðsins.
- 1994: Jan K. Svendsen, landsgildismeistari í Noregi.
- 1997: Einar Tjörvi Elíasson, varalandsgildismeistari á Íslandi.
- 1999: Kjell Magne Bondevik, forsætisráðherra Noregs.
- 2000: Jukka Paarma. erkibiskup í Finnlandi.
- 2001: Margareta Fromholz, landsgildismeistari í Svíþjóð.
- 2002: Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
- 2003: Séra Anita Esbjörn, Utby og Hörby, Danmörku.
- 2004: Carsten HP Johansen, formaður bandalags norskra skáta.
- 2005: Séra Heikki Karvosenoja, dómprofastur við Dómkirkju Uleå, Svíþjóð.
St. Georgsgildin á Suðurlandi og Landsgildið skipta bróðurlega með sér umsjá St. Georgsdagsins sunnan heiða.
Næstu sjö árin er skiptingin áætluð þessi:
- 2005: St. Georgsgildið í Keflavík.
- 2006: St. Georgsgildið Straumur.
- 2007: St. Georgsgildið í Kópavogi.
- 2008: St. Georgsgildið í Reykjavík.
- 2009: Landsgildið.
- 2010: St. Georgsgildið í Hveragerði.
- 2011: St. Georgsgildið í Hafnarfirði.