Samband St. Georgsgilda á Norðurlöndum (Nordisk Underregion) NUR
Samband St. Gildanna á Norðurlöndum (Nordisk Underregion - NUR) var stofnað árið 1986 til þess að efla samstarf norrænu landsgildanna. Í stjórn þess sitja landsgildismeistarar og erlendir bréfritarar St. Georgsgildanna á Norðurlöndunum og núverandi forseti þess er landsgildismeistari Noregs.
Aðalstjórnarfundur NUR er einu sinni á ári á víxl á Norðurlöndunum. Í núverandi stjórn NUR eru:
- Steen C. Andersen, landsgildismeistari Danmerkur
- Harald B. Pettersen, landsgildismeistari Noregs
- Björg Walstad, fulltrúi NUR í Alþjóðastjórn
- Arne Sandin, landsgildismeistari Svíþjóðar
- Solveig Hillbro, erlendur bréfritari, landsgildisstjórn Svíþjóðar
- Rigmor Lauridsen, landsgildisstjórn Finnlands
- Ilmo Pulkamo, landsgildismeistari Finnlands
- Rita Söderström, erlendur bréfritari, landsgildisstjórn Finnlands
- Elín Richards, landsgildismeistari Íslands
- Jón Bergsson, erlendur bréfritari, landsgildisstjórn Íslands
NUR er einstaklega öflugt og virkt samband sem nýtur mikillar virðingar á erlendum vettvangi og önnur gildia-sambönd vildu gjarna taka sér til fyrir-myndar.
NUR heldur þing þriðja hvert ár, til skiptis á Norðurlöndunum fimm. Næstsíðasta NUR-þingið var haldið í Mora í Svíþjóð árið 2000.
NUR einskorðar ekki starfsemi sína við þinghald og stjórnarfundi. Það hefur í nokkur ár starfrækt samstarfshóp og staðið fyrir námstefnum um ýmis málefni er tengjast starfsemi gildanna. Til þessa samstarfshóps (Working Group) var stofnað á stjórnarfundi í Svíþjóð 1996. Í starfshópnum eru fulltrúar frá Danmörku, Noregi og Svíþjóð einn frá hvoru landi. NUR bar allan kostnað af fundarsókn þessara fulltrúa. Þjóðirnar þrjár fengu einnig tækifæri til að skipa viðbótarfulltrúa í hópinn gegn því að landsgildi landanna bæru af þeim allan kostnað. Starfshópurinn var seinna stækkaður og landsgildum Finnlands og Íslands boðið að eiga í honum fasta fulltrúa. Finnland þáði boðið en Ísland baðst undan vegna hins mikla kostnaðar við að sækja fundi. Landsgildið íslenska fær þó allar fundargerðir og annað efni sem frá samstarfshópnum kemur. Hlutverk samstarfshópsins er að koma með tillögur um ýmis mál til stjórnar NUR sem tekur um þau endanlega ákvörðun.
Aðalmarkmið stjórnar NUR eru:
- tengja norrænu gildin
- koma á virku samstarfi milli norrænu landsgildanna
- hvetja til sameiginlegrar afstöðu norrænu gildanna gagnvart ISGF og þjóðfélaginu í heild
- upplýsa og hvetja norrænu gildin til sameiginlegs átaks í þágu hreyfingarinnar
NUR stendur fyrir því að árlega er ritaður boðskapur St. Georgsdagsins og honum dreift til allra norrænu gildanna. Norrænu landsgildin skipta því á milli að annast þetta. Árið 2002 reit forseti Íslands boðskapinn og Carsten HP Johansen, formaður bandalags norskra skáta árið2003.
Síðasta landsgildisþing var haldið 25. til 29. júní 2003á Akureyri. Skipulag þess var í höndum Akureyrargildanna og tókst það með afbrigðum Næsta NUR-þing verður haldið í Bodö í Noregi í júní 2006.
Ákveðið hefur verið að útvíkka norræna gildasambandið og taka inn Eystrasaltslöndin: Eistland, Lettland og Litháen. Þessi útvíkkun hefur fengið samþykki Alþjóðastjórnar og á síðasta málþinginu varðandi þessi mál, sem haldið var í Kaupmannahöfn í byrjun mars 2005, var gengið frá drögum að samþykktum fyrir hið nýja samband, er nefnist Noræna Baltneska gildasambandið (Nordic Baltic Sub-region). Tungumálið sem notað verður innan NBSR verður enska. Samþykktardrögin verða lögð fyrir NBSR-þingið í Bodö í júní 2006. Nálgast má þessi drög hér.