Minningarorð um látna gildisfélaga

Guðjón Magnús Jónsson fæddist í Stapakoti í Innri-Njarðvík 29. júní 1929, en lést í Reykjavík 30. maí í vor. Hann var 7. í röðinni af 11 alsystkinum, en auk þess átti hann 4 eldri hálfsystkini, 3 samfeðra og 1 sammæðra. Ungur að árum flutti hann til Keflavíkur með foreldrum sínum og systkinum, þar sem hann ólst síðan upp.

Ungur gekk Guðjón, eða Gaui í Stapakoti, eins og hann var venjulega kallaður, í skátafélagið Heiðabúa og varð þar góður liðsmaður. Gaui fluttist til Reykjavíkur árið 1966 og starfaði þar við bílaviðgerðir og akstur.

Árið 1968 kvæntist hann Hólmfríði Benediktsdóttur frá Garði í Aðaldal. Eignuðust þau tvo syni. Þau reistu sér fagurt heimili á Seltjarnarnesi, þar sem Gaui eyddi síðasta hluta starfsævi sinnar við störf í Áhaldahúsi Seltjarnarness. Þau hjónin hafa um langt skeið verið mjög virkir félagar St. Georgsgildisins í Keflavík. Þau höfðu reist sér góðan sumarbústað á æskuslóðum eiginkonunnar í Aðaldal, og það var lengi ósk Gauja, að gildisfélagarnir gætu heimsótt þau í bústaðinn og haldið þar gamaldags varðeld með tilheyrandi söng og kakódrykkju, en hann átti, er til kom, enn lengri ferð fyrir höndum og er nú "farinn heim", eins og skátar segja.

Við óskum frábærum félaga góðrar ferðar til nýrra heimkynna og vottum eiginkonu hans, afkomendum og öðrum aðstandendum innilega samúð okkar, vegna fráfalls góðs drengs.

Guðrún Sigríður Sigurðardóttir sem ætíð gekk undir nafninu Dúra, fæddist í Vestmannaeyjum 28. apríl 1925. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi í Garði 18. júní s.l. Dúra var þriðja í röðinni af 5 alsystkinum, en auk þess átti hún eina hálfsystur, samfeðra. Dúra fluttist um eins árs aldur til Keflavíkur, en er hún var 10 ára fluttist fjölskyldan að Glóru í Hraungerðishreppi, þar sem hún átti heima fram að fermingu, en þá fluttu þau aftur til Keflavíkur.

Eiginmaður Dúru var Jón A. Valdimarsson. Eignuðust þau 4 börn, en fyrir átti Dúra einn son. Barnabörnin eru orðin 13 og barnabarnabörnin 24. Allan sinn búskap hafa Jón og Dúra búið í Njarðvík eða Keflavík. Jón hafði alist upp í Vestmannaeyjum og verið þar í skátastarfi, og í Njarðvík varð hann félagsforingi skátafélagsins Víkverja.

Að sjálfsögðu tók Dúra þátt í þessum áhugamálum hans og gekk síðar með honum í St. Georgsgildið í Keflavík, þar sem þau urðu mjög virkir og góðir félagar, sem alltaf var gott að leita til, ef eitthvað þurfti að gera. Við þökkum Dúru afburða gott samstarf í gildinu og vottum Jóni, ásamt afkomendum þeirra Dúru og öðrum aðstandendum, innilega samúð okkar.

Áslaug María Friðriksdóttir fæddist í Reykjavík 13.07.1921 og lést 29. júní 2004 eftir hetjulega baráttu við erfiðan sjúkdóm.

Ung gerðist Áslaug skáti og tamdi sér ávallt það besta sem skátahreyfingin hafði upp á að bjóða. Hún var heil í öllum verkum sínum, glaðvær, framtakssöm og frjó. Hún var afar vinsæl og snemma kölluð til að gegna hlutverki foringjans. Hún var skáti af lífi og sál.

Mannrækt og málefni æsku og kvenna voru Áslaugu mikið hjartans mál. Hún útskráðist frá Kennaraskólanum árið 1941 og helgaði líf sitt kennslu, m.a kenndi hún við Eskihlíðar- og Hlíðaskóla og gegndi skólastjórastöðu við Ölduselaskóla frá stofnun hans fram til 1988. Áslaug var afar farsæll kennari, vinsæl meðal starfsfólks og nemenda. Þeir sem villst höfðu inn í öngstræti lífsins áttu sér öflugan forsvara í Áslaugu. Hún kenndi um tíma í Kvennaathvarfinu og sat lengi í Barnaverndarnefnd svo dæmi séu tekin.

Starf hennar fyrir hreyfingu skáta og gildisskáta voru einnig mikil og farsæl, hún var til dæmis Gildismeistari í Reykjavíkurgildinu, Landsgildismeistari, foringi Kvenskátafélags Reykjavíkur, í stjórn BÍS og formaður Skátasambands Reykjavíkur. Hún var okkur sem með henni störfuðu hvatning og fyrirmynd.

Einkunnarorð Áslaugar voru "Reyndu að kveðja þennan heim eilítið betri en hann var þegar þú komst í hann" og þannig lifði hún lífinu.

Kankvísa brosið hennar bjarta er nú slokknað, og falleg gáfurík augun geisla ei lengur mót lífinu og okkur vinum hennar, en í minningum okkar skáta lifir það þó eilíflega. Fjölskyldu hennar, aðstandendum og vinum semdum við einlægar samúðarkveðjur.

Jónas B. Jónsson var ástsæll og mikilvirkur forystumaður úr hópi skáta. Jónas B. Jónsson fyrrum skátahöfðingi,"fór heim" 1. apríl 2005.

Jónas tók við sem skátahöfðingi af Helga Tómassyni árið 1958 og gengdi embættinu til ársins 1971. Á þessu tímabili var mikill uppgangur í hinni íslensku skátahreyfingu og var Jónas m.a. ára-tugum saman í forsvari fyrir uppbyggingu Úlfljóts-vatns. Þar gengdi hann embætti formanns Úlfljóts-vatnsráðs í rúma tvo áratugi eftir að hann lét af störfum skátahöfðingja. Margir núlifandi gildis-skátar muna Jónas frá þeim tíma er þeir voru í virku skátastarfi og tala af hrifningu um skörulega stjórn hans bæði sem skátahöfðingja og forystumanns við Úlfljótsvatn.

Skáta- og gildishreyfingin sendir eftirlifandi eiginkonu Jónasar, börnum hans, ættingum og öðrum ástvinum innilegar samúðarkveðjur. Hans verður minnst í annálum hreyfingarinnar sem sanns skáta og virts foringja.

Sigurlaug (Silla) Arnórsdóttir, "fór heim" þann 24. apríl 2005.

Hún var nýlega orðin 82ja ára, þegar hún lagði af stað í langferðina miklu. Silla var löngum lífið og sálin í því sem var að gerast í kringum hana. Rösk var hún og ákveðin í orði og verki. Hláturinn og hjartahlýjan voru förunautar hennar. Handtökin voru hiklaus og hugurinn heill að hverju sem hún gekk.

Sigurlaug Arnórsdóttir var einn af brautryðjendunum í hafnfirsku skátastarfi. Ung gerðist hún skáti, vann sitt skátaheit og ástundaði að efna það alla daga síðan. Hún gerðist brátt atkvæðamikill foringi í skátastarfinu og var fyrsti sveitarforingi kvenskáta í Hafnarfirði. Skátasporin hennar Sillu eru óteljandi.

Sigurlaug Arnórsdóttir var einn af stofnendum St. Georgsgildisins í Hafnarfirði og stóð alla tíð dyggan vörð um hugsjónir og gildi St. Georgsgildanna. Hún hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir Hafnarfjarðar-gildið og Landsgildið, en hún var í stjórn þess í 14 ár.

Silla er hugstæð okkur skátavinum hennar. Hún var sannur og góður félagi. Minningar lýsa og virðing vakir. Vertu sæl Silla, skátasystir og vinkona. Guð blessi þig.