Landsgildisþing
Landsgildisþing og gildishátíð eru haldin annað hvort ár í apríl eða maí og skipta gildin á milli sín skipulagningu og umsjón þeirra. Dagskrá þingsins, sem er bundin í samþykktum Landsgildisins, fer hér á eftir:
- Þingsetning
- Skipun tveggja fundarstjóra og tveggja fundarritara
- Lögð fram skýrsla stjórnar og endurskoðaðir reikningar til umræðu og afgreiðslu
- Starfsskýrslur gilda
- Breytingar samþykkta
- Uppstillingarnefnd leggur fram tillögur sínar
- Kosning Landsgildismeistara
- Kosning 6 stjórnarmanna í einu lagi
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og eins til vara
- Ákveðið árgjald til Landsgildis
- Önnur mál
Landsgildismeistari setur Landsgildisþing og skipar því fundarstjóra og ritara.
Rétt til þingsetu með öllum réttindum hafa allir gildisskátar.
Þingfundum skal stjórna samkvæmt þingsköpum Landsgildisins.
Einfaldur meirihluti ræður úrslitum í öllum málum, nema samþykktir Landsgildisins mæli fyrir um annað.
Kjörtímabil stjórnar er tvö ár. Æskilegt er að sem flest gildi eigi fulltrúa í stjórn. Ekki skal stjórnarmönnum skylt að taka kosningu nema eitt kjörtímabil í senn