Í dag starfa níu St. Georgsgildi á Íslandi.

St. Georgsgildið á Akureyri, gildismeistari Þórey Bergsdóttir, s. 462-4225. Gildið var stofnað 1963, og fyrsti gildismeistari þess var Dúi heitinn Björnsson.

St. Georgsgildið Kvistir á Akureyri, gildismeistari þess er Friðjón Halldórsson, s. 61-3354. Kvistur var stofnaður 1998 og fyrsti gildismeistari gildisins var Ólafur Ásgeirsson.

Gildið Andvarar á Sauðárkróki með gildismeistarann Helga Hannesson, s. 453 3433. Var stofnað árið 1996 og var fyrsti gildismeistari þess Helgi Hannesson.

St. Georgsgildið í Reykjavík, gildismeistari Einar Tjörvi Elíasson, s. 551 5424. Það var stofnað mars/apríl 1959 og fyrsti gildismeistari þess var Daníel Gíslason, sem nú er látinn.

St. Georgsgildið Straumur í Reykjavík, þar er gildismeistari Þórdís Katla Sigurðardóttir, s. 565-7967. Gildið var stofnsett árið 1975.

St. Georgsgildið í Kópavogi var stofnað 17. apríl 1997 og var Elín Richards fyrsti gildismeistari gildisins. Núverandi gildismeistari þess er Kjartan Jarlsson, s. 555-4004.

St. Georgsgildið í Hafnarfirði hefur Kristjönu Þórdísi Ásgeirsdóttur s. 555-4513 sem gildismeistara og var gildið stofnsett 23. maí 1963. Fyrsti gildismeistari þess var Eiríkur Jóhannesson.

St. Georgsgildið í Keflavík, gildismeistari þar er Hreinn Óskarsson; s. 421-1659. Gildið var stofnað 27. maí 1963 og fyrsti gildismeistari þess var Magnús Jónsson.

St. Georgsgildið í Hveragerði, gildismeistari er Helga Jósefsdóttir, s. 483-4608. Gildið var stofnað 2000, og Karlinna Sigurmundsdóttir var fyrsti gildismeistari þess.

Öll eru íslensku gildin mjög virk í starfi erlendis sem og hér heima, og sífellt í leit að nýjum félögum.

Gerstu gildisskáti - skráðu þig hér!