Alþjóðasamband St. Georgsgilda
Alþjóðasamband St. Georgsgilda nefnist á ensku "International Scout and Guide Fellowship - an organisation for adults" og á ensku það er skammstafað ISGF en AISG á frönsku. Það hefur höfuðstöðvar sínar í Brussel í Belgíu og hefur þar einn fastan starfsmann, skrifstofustjóra sem er kona að nafni Faouzia Kchouk. Nýr forseti alþjóðasambandsins var kjörin á þinginu í Lillehammer og hann er frú Martine Lévy.
Heimilisfang skrifstofunnar er:
ISGF World Bureau
Avenue de la Porte de Hal, 38
B-1060 Brussels
Belgium
S.: +322 511 4695
Fax: +322 511 4695
Netfang: isgf-aisg@skynet.be
Veffang: http://www.isgf.org
Um leið og þú gerist gildisskáti í St. Georgsgildi á Íslandi gengur þú einnig í alþjóðlegu gildisskátahreyfinguna (ISGF). Þú verður þarmeð einn af u.þ.b. 90.000 gildisskátum frá 55 þjóðlöndum.
Alþjóðlega gildisskátahreyfingin var stofnsett þann 25. október 1953. Markmið hennar eru:
- Að koma á tengslum og nánu samstarfi milli gilda og gildisskáta hinna ýmsu landa
- Að stuðla að stofnun St Georgsgilda í löndum þar sem engin gildi finnast
- Að efla vináttu milli gildisskáta um heim allan
- Að standa fyrir alþjóðlegum verkefnum, skipuleggja þau og styrkja