Tengsl St. Georgsgildanna við skátahreyfinguna eru mjög fjölþætt og gifturík.

Margir félagar gildanna taka virkan þátt í skátastarfinu sem skátaforingjar, aðstoða við skipulag móta, fjölskyldubúða og ýmissa stærri viðburða, veita aðstoð við skátaskeytin o.fl.

Flest gildanna aðstoða gildin líka með fjárframlögum til kaupa á búnaði og þess háttar, eða styrkja einstaka skáta til að sækja alþjóðleg skátamót "jamboree", sækja foringja námskeið og fleira.

Landsgildismeistari er áheyrnarfulltrúi í stjórn Bandalags Íslenskra Skáta (BÍS), vinnur að minjasafni skáta. Eins á Landsgildið fulltrúa í húsnefnd skátamiðstöðvarinnar í Árbænum. Einn af stjórnarmeðlimum Landsgildisins, Sesselja Halldórsdóttir, er fulltrúi í stjórn BÍS, og annar aðstoðarskátahöfðinginn, Halla Helgadóttir, er virkur gildisskáti í Hafnarfjarðargildinu.

Undanfarin ár hafa Landsgildið, skátar og björgunarsveit skáta unnið saman að skipulagningu á og annast sendingu "Friðarlogans frá Betlehem" um landið og útbreiðslu hans á höfuðborgarsvæðinu og úti á landsbyggðinni. Þetta einstæða samstarf skáta og gildisskáta sýnir á áhrifaríkan hátt hve vel skátar og gildi vinna saman þegar tilefni gefast. Það er staðföst stefna St. Georgsgildanna á Íslandi og BÍS að gera þessi tengsl ennþá nánari og styrkari er fram líða stundir.