Evrópudeild ISGF
Evrópudeild ISGF (ISGF European Region) hafði verið til sem óformlegt samband í nokkurn tíma þegar ákveðið var á Evrópuþinginu í Prag, Tékklandi árið 1995 að tímabært væri að setja Evrópudeildinni stjórn. Verkefni væntanlegrar stjórnar voru rædd bæði á 21. Heimsþinginu í Montegrotto, Ítalíu 1996 og á 3. Evrópuþinginu í Lissabon, Portúgal 1998. Stjórn Evrópudeildarinnar var formlega sett á laggirnar í Lissabon og til hennar valdir einn fulltrúi frá hverri undirdeild Evrópu. Fulltrúar þessir voru valdir af undirdeildunum sjálfum, en ekki formlega kjörnir af ráðstefnunni. Stjórnin velur eigin starfslið. Alheimsstjórnin skipaði eigin fulltrúa sem hefur það hlutverk að annast samskiptin milli hennar og stjórnar Evrópu-deildarinnar.
Frá upphafi hafa verkefni Evrópustjórnarinnar verið takmörkuð við:
- að skipuleggja Evrópuþing fjórða hvert ár
- að samstilla dagsetningar á mótum í undirdeildunum svo síður verði árekstrar
Markmiðið með því síðastnefnda var að gera ISGF félögum mögulegt að sækja mót í hvaða landi sem er.
Á fjórða Evrópuþinginu, sem haldið var í Búdapest og m.a. sótt af 42 fulltrúum frá Íslandi, var starf hennar útvíkkað nokkuð. Þingið ákvað að m.a. stofna Evrópskan Hjálparsjóð. Peningar höfðu fengist í arf til þessa sjóðs og það skilyrði sett að Evrópustjórnin hefði umsjón með sjóðnum. Evrópustjórninni var falið að leggja fram tillögu um drög að samþykktum fyrir sjóð þennan og fyrirkomulagi að rekstri hans til fimmta Evrópuþingsins.
Ákvörðun um önnur verkefni fyrir stjórn Evrópudeildarinnar skyldu bíða Heimsþingsins í Vancouver 2003. Stjórnin Evrópudeildarinnar hittist einu sinni á ári og ákveður hún sjálf fundarstaðinn.
Fimmta Evrópuþingið var haldið í Canterbury, Bretlandi 9. til 13. júní 2004. Það var sótt af 17 fulltrúum frá Íslandi og var það stærsti erlendi hópurinn.
Ekki náðist samstaða um Evrópusjóðinn og málinu frestað til Heimsþingsins sem halda á um miðjan júní 2005í Lillehammer, Noregi. Ný stjórn var kjörin og er formaður Evrópudeildarinnar hr. Werner Weilguny frá Austurríki. Á þinginu var rædd tillaga frá Norræna gildissambandinu NUR um einföldun á stjórnkerfi Alþjóðasambandsins sem m.a. fæli í sér að leggja Evrópudeildina niður í núverandi formi.
Landsgildismeistari lagði þar orð í belg og má nálgast umsögn hans með því að klikka hér