Helstu baráttumál alþjóðasambandsins, allra undirdeilda þess og landsgilda allra þjóða eru:

  • Útbreiðsla boðskapar Skáta og St. Georgsgilda með því að:
    • að efla vináttu meðal allra þjóða
    • berjast fyrir gagnkvæmum skilningi og virðingu milli manna
    • standa fyrir fræðslu og ýmissi aðstoð til þeirra sem minnst mega sín
  • Fjölga St. Georgsgildum og bæta upp fækkun gildisskáta í einstökum gildum
  • Styrkja samstarf og tengsl St. Georgsgilda og Skáta
  • Finna leiðir til þess að gera St. Georgsgildin meira aðlaðandi fyrir unga með:
    • verkefnum sem fanga hug þeirra og athafnaþörf
    • stofnun vináttugilda (twinning)
    • erlend hjálparverkefni svo sem að koma á námskeiðum og efla nám
    • hjálpa við útvegun skólabúnaðar, byggja skóla o.fl.
  • Finna leiðir til þess að gera stjórnar alþjóðaskrifstofu og stjórnar ISGF einfaldari, sveigjanlegri og virkari þannig að hún falli betur að nútímanum og hugsunarhætti ungu skátanna og þeirra sem nú eru á leið úr virku starfi innan skátanna, en vilja þó halda nánum tengslum við hreyfinguna og styðja hana

NUR barðist hatrammt á móti þeirri tillögu að breytingu á samþykktum ISGF, sem var á döfinni fyrir Heimsþingið í Vancouver júní 2002, að skátanafnið skyldi miðast við 25 ára og yngri. Átti samkvæmt því að breyta nafni ISGF í "International Fellowship - an organisation for adults", það er að sleppa allri tengingu við skátahreyfinguna. Haldnir voru 2 fundir á vegum NUR um málið og sótti fulltrúi Landsgildisins báða fundina í boði NUR. Forseti ISGF, Niels Rosenbom, var kallaður á seinni fundinn og lýstu öll norrænu landsgildin þar yfir mjög eindrægri andstöðu gegn þessu. NUR sendi síðan aðra tillögu að lagabreytingum, sem var einróma samþykkt á Heimsþinginu.

SKÁTAR ERUM VIÐ ENN - líka í nýjum lögum ISGF sem áfram heldur nafni sínu óbreyttu. Landsgildi munu hér eftir nefnast "The National Scout and Guide Fellowship" NSGF og gildin "Local Scout and Guild Fellowship" LSGFá erlendum vettvangi.

NUR og íslenska Landsgildið hafa einnig hafið virka baráttu fyrir breytingum á stjórnunarháttum ISGF, WCOM og WB eins og t.d á Evrópuþinginu í Kantaraborg 2004. Þessi barátta hefur m.a. komið því til leiðar að nú er sérstök nefnd ISGF að vinna að tillögum til breytinga sem leggja á fyrir Heimsþingið í Lillehammer 2005 og NUR hefur sent henni tillögu að nýju skipulagi til þess að vinna úr. Tillögur þessar er hægt að nálgast hér