Saga "Bálsins" sem er málsgagn St. Georgsgildanna á Íslandi
Upphafið
Fljótlega eftir að Landsgildið komst á legg, var farið að huga að útgáfu málgangs þess og fréttabréfs. Það varð þó ekki fyrr en 1968, að þessar hugmyndir urðu að veruleika.
Þá var Landsgildinu, sem þá hét Bandalag íslenskra St. Georgsskáta, boðinn aðgangur að Foringjanum, sem Bandalag íslenskra skáta gaf þá út. Hugmyndin var að Bálið kæmi út sem fylgiblað Foringjans á miðopnu eða opnum hans. Í staðinn átti Landsgildið að stuðla að fjölgun áskrifaenda Foringjans.
Fyrstu árin
Fyrsta tölublað Bálsins var fjórar síður og kom út í 3. tbl. Foringjans 1968. Fyrsti ritstjóri þess var Franch Michelsen. Tvö tölublöð komu út á árinu og var hið síðara 8 síður.
Á næsta ári komu út fjögur tölublöð, samtals 16 síður. Þá var Foringinn gefinn út á Akureyri og Dúi Björnsson, sem verið hafði fyrsti Landsgildismeistari, orðinn meðritsjóri Franchs.
Árið 1970 kom ekkert Bál út, en tvö tölublöð Bálsins komu út árið 1971 og þá sem fylgiblöð Foringjans og er Franch Michelsen ritstjóri þeirra.
Árið 1972 gáfu gildin út blaðið St. Georg, fjórar síður í dagblaðsformi.
Næst stingur Bálið upp kollinum árið 1974 og þá sem fylgirit Skátablaðsins undir ritstjórn Eiríks Jóhannessonar. Franch Michelsen er þá ábyrgðarmaður blaðsins. Það komu út sex tölublöð af Bálinu sem fylgirit Skátablaðsins á árunum 1974 og 1975. Þá féll niður útgáfa skátablaðsins um skeið og þar með Bálsins.
Landsgildið hefur sjálfstæða útgáfu Bálsins 1977
Árið 1977 tók svo Landsgildið á sig rögg og hóf sjálft útgáfu Bálsins. Það var í sama broti og það hafði verið sem fylgirit Skátablaðsins og komu út þrjú tölublöð þetta ár, fjórar blaðsíður hvert. Eiríkur, Franch og Hrefna Tynes sáu um þessa útgáfu af Bálinu.
Fyrsta tölublað Bálsins 1978 var svo prentað í þeirri stærð, sem það heldur enn. Þetta ár komu út þrjú tölublöð af Bálinu (8, 8 og 12 bls.) og var Hrefna Tynes ábyrgðarmaður þeirra.
Bálið blómstraði árið 1979, en þá komu út 5 tölublöð, samtals 40 bls. Næsta ár komu út tvö tölublöð af Bálinu, samtals 20 bls. Hrefna Tynes var ábyrgðarmaður Bálsins bæði þessi ár.
Bálið 1981 - 1990
- 1981
- Eitt tölublað, 24 bls., ritstj. Björn Stefánsson, ábyrgðarmaður Jóhanna Kristinsdóttir.
- 1982
- 1.-2. tbl. og 3.-4. tbl., alls 32 bls., ritstj. Björn Stefánsson, ábm. Jóhanna Kristinsdóttir.
- 1983
- 1.-2, 3. og 4. tbl., alls 44 bls., ritstj. Björn Stefánsson, ábm. Jóhanna Kristinsdóttir.
- 1984
- 1., 2. og 3.-4. tbl., alls 40 bls., ritstj. Björn Stefánsson, ábm. Jóhanna Kristinsdóttir.
- 1985
- 1., 2.-3. og 4. tbl., alls 48 bls., Björn og Jóhanna með 1. tbl., Björn Stefánsson ritstjóri og ábm. seinni tbl.
- 1986
- Á Landsgildisþingi 1985 var ákveðið að gildin tækju að sér Bálið til skiptis, eitt ár í senn. Þetta ár er Bálið í umsjá Reykjavíkurgildisins, en Björn Stefánsson áfram ritstjóri og ábyrgðarmaður þess. Út komu fjögur tbl. samtals 68 bls.
- 1987
- Bálið í umsjá St. Georgsgildisins Straums, ritstj. Júlíus Aðalsteinsson, ábm. Björn Stefánsson. Út komu fjögur tbl., alls 60 bls.
- 1988
- Bálið í umsjá St. Georgsgildisins í Hafnarfirði. Forsíða í lit og nokkrar fyrirsagnir. Ritstjórn: Albert Kristinsson, Hörður Zóphaníasson, Jón Kr. Gunnarsson, ábm. Björn Stefánsson. Fjögur tbl., alls 96 bls.
- 1989
- Bálið í umsjá St. Georgsgildisins á Akureyri. Forsíða í lit. Ritstjórn: Gunnar Rafn Einarsson, Aðalgeir Pálsson, Fanney Kristbjarnardóttir. Ábm. Björn Stefánsson. Út komu fjögur tbl., alls 96 bls.
- 1990
- Bálið í umsjá St. Georgsgildisins í Keflavík. Forsíða í lit. Ritstjóri Jóhanna Kristinsdóttir, ábm. Áslaug Friðriksdóttir. Út komu fjögur tbl., alls 80 bls.
Bálið 1991
- 1991
- Bálið í umsjá St. Georgsgildisins í Reykjavík. Ritstjórn: Þorsteinn Magnússon, Franch Michelsen, Nína Ísberg. Ábm. Áslaug Friðriksdóttir. Út komu fjögur tbl., alls 64 bls.
- 1992
- Bálið í umsjá St. Georgsgildisins í Reykjavík. Ritstjórn: Þorsteinn Magnússon, Franch Michelsen, Nína Ísberg. Ábm. Áslaug Friðriksdóttir. Út komu fjögur tbl., alls 72 bls.
- 1993
- Bálið í umsjá St. Georgsgildisins í Hafnarfirði. Forsíða í lit og ljósmyndir á sumum síðum. Ritstjórn: Albert Kristinsson, Hörður Zóphaníasson, Jón Kr. Gunnarsson. Út komu fjögur tbl,, 3. og 4. tbl. í einu hefti, alls 88 bls.
- 1994
- Bálið í umsjá St. Georgsgildisins í Hafnarfirði. Forsíða í lit og ljósmyndir á sumum síðum. Ritstjórn: Albert Kristinsson, Hörður Zóphaníasson, Jón Kr. Gunnarsson. Út komu fjögur tbl., alls 92 bls.
- 1995
- Bálið í umsjá St. Georgsgildisins á Akureyri. Forsíða í lit og ljósmyndir á sumum síðum. Ritstjórn: Brynjólfur Tryggvason, Ingigerður Traustadóttir, Valgeir Torfason, Þórdís Tryggvadóttir. Út komu þrjú tbl., alls 72 bls.
- 1996
- Bálið í umsjá St. Georgsgildisins á Akureyri. Forsíða í lit og ljósmyndir á sumum síðum. Ritstjórn: Brynjólfur Tryggvason, Ingigerður Traustadóttir, Valgeir Torfasson, Þórdís Tryggvadóttir.Út komu þrjú tölublöð, alls 72 bls.
- 1997
- Bálið í umsjá St. Georgsgildisins í Keflavík. Ritnefnd: Jóhanna Kristinsdóttir, Jakob Árnason, Ólafía Einarsdóttir og Björn Stefánsson sem var ritstjóri og ábm. Út komu þrjú tbl., alls 48 bls.
- 1998
- Bálið í umsjá St. Georgsgildisins í Keflavík. Ritnefnd: Jóhanna Kristinsdóttir, Jakob Árnason, Ólafía Einarsdóttir og Björn Stefánsson sem var ritstjóri og ábm. Út komu þrjú tbl., alls 52 bls.
- 1999
- Bálið í umsjá Landsgildisstjórnar. Ritstjóri Fanney Kristbjarnardóttir. Út komu þrjú tbl., alls 52 bls.
- 2000
- Bálið í umsjá Landsgildisstjórnar. Ritstjóri Fanney Kristbjarnardóttir, aðstoðar ritstjóri og fulltrúi Bálsins á Norðurlandi Guðný Stefánsdóttir. Út komu þrjú tbl., alls 48 bls.
- 2001
- Bálið í umsjá Landsgildisstjórnar. Ritstjóri Fanney Kristbjarnardóttir. Henni til aðstoðar: Aðalbergur þórarinsson, Eyrún Eyþórsdóttir, Gunnar Rafn Einarsson, Hörður Zóphaníasson, Valdimar Már Pétursson. Út komu þrjú tbl., alls 48 bls.
- 2002
- Vegna tregðu gildanna til þess að taka að sér umsjón Bálsins í eitt eða tvö ár í senn, þá samþykkti Landsgildisstjórn að óska eftir því við gildin, að þau sæju um Bálið til skiptis, eitt tölublað í hvert skipti. Dregið var um röðina og varð niðurstaðan þessi:
- 2002
- 1. tbl. St. Georgsgildið Kvistur, Akureyri
2. tbl. St. Georgsgildið á Akureyri
3. tbl. St. Georgsgildið Straumur - 2003
- 1. tbl.. St. Georgsgildið í Hveragerði
2. tbl. St. Georgsgildið í Kópavogi
3. tbl. St. Georgsgildið í Keflavík
Landsgildisstjórn tók aftur yfir útgáfu Bálsins. Einnig voru skipaðir fulltrúar í ritnefnd, einn frá hverju gildi.
- 2004
- 1. tbl. Landsgildið - ritstjóri Lára Björnsdóttir, Kópavogsgildið
2. tbl. Landsgildið - ritstjóri Einar Tjörvi Elíasson, Reykjavíkurgildið - 2005-07
- 1. tbl. Landsgildið - ritstjóri Einar Tjörvi Elíasson, Reykjavíkurgildið
2. tbl. Landsgildið - ritstjóri Einar Tjörvi Elíasson, Reykjavíkurgildið
3. tbl. Landsgildið - ritstjóri Einar Tjörvi Elíasson, Reykjavíkurgildið