Árgjöld til Landsgildisins eru ákveðin á Landsgildisþingi og gilda óbreytt til 3 ára eða fram að næsta þingi:
Þau nema nú 500 krónum á hvern félaga og eru notuð til að standa undir kostnaði af starfsemi landsgildisins innanlands og erlendis, og skiptist gjaldið þannig:
- Til greiðslu á félagsgjaldi til NUR, sem nemur (40 evrum) 3.500 krónum fyrir Landsgildið (u.þ.b. 10 kr/mann)
- Félagsgjald til Evrópusamtakanna (2 Dkr) eða 27 krónur á mann
- Félagsgjald til Alþjóðasambandsins en það er 140 krónur eða 1,64 evrur á mann.
Til fróðleiks má geta þess að árgjaldið til Landsgildisins er langlægst á Íslandi. Það nemur aðeins einum sjötta af árgjaldinu til þess danska og helmingi þess næstlægsta sem er árgjald finnska landgildisins.
Þetta er ekki neitt til þess að hrósa sér yfir, það endurspeglar nokkuð vel hið erlenda og innlenda starf sem í gangi er hjá hinum ýmsu landsgildum.