"St. Georgsgildin á Íslandi", Landsgildið, var stofnað á Akureyri 2. júní 1962

Markmið St. Georgsgildanna á Íslandi eru að:

  • vera tengiliður, sem eflir samband við skátahreyfinguna og gamla skátafélaga
  • brýna fyrir gildisfélögum hjálpsemi og ábyrgðartilfinningu
  • útbreiða skátahugsjónina og stuðla að því að gildisfélagar sýni sannan skátaanda í verki

Gildisheitið

Ég lofa að leitast við að lifa lífi mínu í samræmi við hugsjónir skátahreyfingarinnar og markmið St. Georgsgilda

Kjörorð gildanna og hinn rauði þráður starfsins er:
Eitt sinn skáti, ávallt skáti