Mynd til vinstri: Morgunnverður á Jamboree. Fólk ennþá að komast í gang. Fremst á myndinni Bubbi og Kristinn, Heiðabúum, þá Gaui, Kópur og loks Þórgnýr og
Vilbrandur, Landnemum.
Mynd til hægri: Helga Rós, Garðbúi á kafi í merkjaviðskiptum. Ekki leikur nokkur vafi á því að hundruð þúsunda ef ekki milljónir merkja skipta um eigendur í gegnum merkjaskipti á móti sem þessu. Um er að ræða þróaða viðskiptagrein og er stundum um mun meira en merki að ræða þegar skátar skipta búningunum sínum, peysum frá sínu landi, töskum, húfum og öðru lauslegu sem gaman er að hafa inni í herberginu hjá sér þegar heim kemur til að minna mann á að á
Jamboree hitti maður annan skáta frá fjarlægu landi.
|
Mynd til vinstri: Íslenski foringjahópurinn talið frá vinstri Sigfús Kristjánsson, aðstoðarfararstjóri, Ægisbúum; Sigurður Úlfarsson, sveitarforingi,
Skjöldungum; Bragi Björnsson, fararstjóri, Ægisbúum og Ingibjörg Guðmundsdóttir, sveitarforingi, Vífli.
Mynd til hægri: Íslenski foringjahópurinn út á þekju!
|
Mynd til vinstri: Helga Rós og Ingibjörg í góðum gír!
Mynd til hægri: Hádegisverður í hátt í fjörtíu stiga hita. ÚFF!
Að lokum frá Skátavefnum:
Það hefur verið frábært fyrir okkur sem heima sátum, að fylgjast með ykkur Chileförum, allt frá undirbúningi til heimkomu og núna að lokum með myndunum, sem Stefan Mallepell hjá KISC, bjargaði okkur um. Kunnum við honum miklar þakkir fyrir - Thank you Stefan and all of you at KISC for your help and making the trip for the Icelandic scouts more memorable than ever! En mestann heiður fær Sigurður Viktor, sem hefur, eins og við allt sem að Skátavefnum kemur, verið ötull við að vinna fréttir og senda - þakka þér Sigurður! Auðvitað þökkum við ykkur - Chilefarar góðir, fyrir að hafa verið með í þessu, lofað okkur að fylgjast svona vel með ykkur og lagt grundvöllinn að því, hvernig hægt er að fylgjast með skátum á ferð og flugi. Af þeim 5,500 skátavefjum sem ritstjórinn þekkir, náði enginn þeirra með tærnar þar sem við vorum með hælana í umfjöllun um heimsmótið í Chile.
En leiðin er vörðuð, þið voruð okkur til sóma - eins og venjulega! Svona gerum við framvegis, í hvert skipti sem skátar ferðast eitthvað. Yngri skátarnir fá þannig tækifæri til þess að fylgjast með spennandi skátastarfi og vita enn betur, að hverju þau stefna í sínu skátastarfi. Á landsmótinu í sumar, munum við auðvitað verða með öfluga kynningu, til þess að foreldrar og vinir íslenskra sem og erlendra skáta geti fylgst með. Auk þess stefnum við að því að vera með útvarpssendingu í Real Audio frá mótinu allan tímann, líkt og í þætti okkar með Hemma Gunn í byrjun ársins, en þannig geta skátar um heim allan fylgst vel með okkur líka - og auðvitað mamma og pabbi líka! Við geymum svo þessar síður undir liðnum "Frá útilegum til skátamóta", til þess að að standa vörð um þær vörður sem þið hlóðuð í þessari ferð.
Að lokum - bestu þakkir fyrir samstarfið! - Með skátakveðju, Guðmundur Jónsson, ritstjóri Skátavefsins.
|