Skátavefurinn - www.scout.is
Myndaserían frá Chile er komin - loksins! (13)
"... og eftir standa vörður þær, sem einhver okkar hlóð ...! - Chapter One - Uno

Þetta eru myndir sem að vinur okkar, vefmeistari Kanderstegvefjarins og aðdáandi Skátavefsins númer eitt Stefan Mallepell tók. Hann tók allar myndirnar í Chilefréttum 13-15, en myndir í Chilefréttum 16 og 17 (lokasíður Chilefrétta 1999) tók Sigurður Viktor Úlfarsson á myndavélina hans Stefans.
Allar þessar myndir eru af norrænu móttökunni sem haldin var 2. janúar. Þangað mætti hver þjóð með skemmtiatriði og mátti þar sjá Finnana með Múmínálfana, jólasveininn og íshokkí, Svíana með Lúsíukór o.s.frv. o.s.frv.
Á myndinni til hægri má sjá í bláa búningnum Ulf Fransson fararstjóra Svíanna átti veg og vanda að skipulagningu móttökunnar og kunnum við honum bestu þakkir fyrir.
Danirnir sýndu danska fánaathöfn (!) og við komum hlaupandi beint úr rútu úr verkefni sem hafði verið staðsett í þorpi töluvert langt frá mótssvæðinu í móttökuna og næstum því beint upp á svið.
Sumir náður þó ekki að snyrta sig áður þar sem þeir voru sendir að ná í pönnukökurnar, mjólkina og Nordjamb2000 kynningarefnið sem við ætluðum að gefa gestunum. Smám saman fjölgaði þó í kórnum þegar líða tók á atriðið og varð þetta hinn myndalegasti hópur.
Þarna sungum við fulltrúa ýmissa tegunda íslenskra söngva þar sem Krummi svaf í klettagjá var fulltrúi þjóðlaga, síðan sungum við Kátir voru karlar og var fólk almennt farið að standa ölduna áður en því lauk og loks kynntum við landsmótið næsta sumar og sungum landsmótssönginn við mikinn fögnuð viðstaddra.

Smellið hér til að skoða fleiri myndir - Click here to see more pictures


Kandersteg Scout Center   Kandersteg Scout Center   Kandersteg Scout Center

Uppfært: 21. janúar, 1999.
© 1999 - Netnefnd BÍS - Guðmundur Jónsson - Stefan Mallepell - KISC - Sigurður Viktor Úlfarsson
Afritun án heimildar er leyfð ef Skátavefsins og Alþjóðamiðstöðvarinnar í Kandersteg er getið með endurbirtingu efnis.
Reproduction of material without permission authorized, giving credit to "www.scout.is" and "Kandersteg Scout Center".