Chilefararnir eru komnir heim í kuldann - brrr! (12) hitastigið 40° lægra hjá þeim í dag en í gær - en þau eru öllu vön!
 Flugvélin rennir sér á ísnum að flugstöðinni | Það var kuldalegt á Keflavíkurflugvelli rétt fyrir klukkan fimm í dag, þegar vélin frá London renndi upp að hlaðinu. Fréttasnápurinn sá skátana fyrir sér, þar sem þau sátu við gluggana og mændu á snjóinn og myrkrið, en með hugann við hlýja loftið og sólina í Chile í gær. "Hvað tíminn er fljótur að líða", hugsuðu þau með sér.
 Nú er vélin komin í hlað (fjærst okkur) og ..... |  ... foreldrar, ættingjar og vinir farnir að bíða eftir þeim |
 Svona var fósturjörðin fyrir utan flugstöðina við heimkomu | Fréttasnápur ákvað að taka á móti þeim, því segja má að þetta hafi verið í leiðinni úr vinnunni. Tollgæslan tók vel á móti fréttasnápi og bauð honum að fara í hæk að rana númer sjö, en þar áttu þau einmitt að koma í land, eftir langt flug frá Chile, um Madríd og London til Íslands. Ekki bjóst hann nú við að sjá hress andlit eftir allt þetta ferðalag og vitandi, að þau söknuðu nýrra vina, sem þau höfðu kynnst á 19. heimsmóti skáta í Chile.
 Elín og Margrét koma hressar upp landganginn | En viti menn, fljótlega eftir að hlaðþjónn hafði opnað dyrnar á vélinni, voru Elín og Margrét með þeim fyrstu til að koma út - mjög hressar í bragði. Eftir að hafa boðið þær velkomnar heim, purði fréttasnápurinn þær, hvort þær vildu nú ekki frekar vera í Chile en á Íslandi í dag. "Júúúú", svöruðu þær báðar strax, en það mátti samt skilja á þeim, að þær væru líka fegnar því að vera komnar heim. Fljótlega á eftir þeim komu þau svo hvert af öðru - og allir í góðu skapi.
 Hæ - Halló Ísland - hér komum við! |  Bragi var enn í fararstjórahlutverkinu og fylgdist með öllu |
Nú voru allir Chilefararnir komnir. Þau hafa farið yfir hálfan hnöttinn og rúmlega það og lært margt nýtt í þerri ferð. Það er fátt eins eftirminnilegt í skátastarfi og það, að komast á heimsmót skáta, þar sem yfir þrjátíu þúsund skátar frá yfir hundrað löndum koma saman og skemmta sér og eignast nýja vini. En ferðinni er nú lokið og ekkert eftir annað en að bjóða þau velkomin heim og fá eina hópmynd í lokin. Þau voru snögg að stilla sér upp fyrir ljósmyndara Skátavefsins - og "segið CHIIIIIILE!".
 Nú röðum við okkur upp og komum með stæl ... |  ... og það gerðu þau, í beinni röð alla leið heim! |
 |  |  |
Uppfært: 12. janúar, 1999 - 20:30 GMT.© 1998 - Netnefnd BÍS - Guðmundur Jónsson
Afritun án heimildar er leyfð ef Skátavefsins er getið með endurbirtingu efnis. Reproduction of material without permission authorized, giving credit to "www.scout.is". |
|---|
|