Skátarnir dvelja hjá fjölskyldum í Santíagó (11)
Þau fengu sólarlausan dag í fyrsta sinn í ferðinni
Loksins loksins!!!!!
 Hér er Jorge, gestgjafi Íslendinganna í Santíagó að fylgjast með hvort Helga Rós borði að hætti Chilebúa |
Nú erum við í Santíagó hjá honum Jorge vini okkar og félagsforingja
skátanna sem við dveljum hjá hér í borg. Móttökurnar hafa verið einu
orði sagt æðislegar og fólk stoppar okkur á götu með bros á vör bara til
að láta okkur vita hversu velkomin við erum.
Við gistum í íþróttahúsi ásamt skátum frá Úrgúgvæ og Slóveníu og héldum
einmitt kvöldvöku með þeim í gær þar sem við kenndum Slóvenunum alls
kyns leiki og þeir okkur, þar með talinn leik sem við lærðum af
Þjóðverjum á jamboreeinu.
Þetta er frábær staður, reyndar klósett og
svoleiðis kannski fremur framandi en það er að sjálfsögðu aðeins hluti
af upplifuninni! :o) Þarna eru einnig starfræktar sumarbúðir fyrir
fátæk börn af svæðinu þar sem þau dvelja 200 saman í eina viku við
uppbyggilega leiki og störf og eru þau manna brosmildust við þessa
skrítnu útlendinga sem allt í einu hafa hertekið svæðið.
Við komum hingað á miðvikudag og skelltum okkur að sjálfsögðu að hætti
íslenskra í verslunarleiðangur og gekk vel!!!
Á fimmtudaginn fórum við í langa rútuferð um bæi og þorp í nágrenni
Santíagó. Á leiðinni skoðuðum við m.a. bæinn Valparaiso, fórum þar í
kláf upp á fjall og á veitingastað þar sem við fengum mat í skömmtum
fyrir þrjá. Þ.e. við borðuðum þrjú og þrjú af hverjum disk og lá við
slag um matinn á sumum diskum! Þá enduðum við á ströndinni Costa Azul
(Bláa ströndin). Þar lentum við í fyrsta sólarlausa tímanum okkar í
Chile (dæmigert!!!). Við létum það þó ekki á okkur fá heldur stilltum á
dæmigerða íslenskt vatnasafaríisstillingu og héldum hálfber út í 15
stiga hitann ákveðin í því að synda í Kyrrahafinu í byrjun janúar. Það
var vægast sagt æðisleg upplifun, þótt lítið yrði um sólböð, að berjast
við Kyrrahafsöldurnar sem við hlupum á móti, létum brotna á okkur þangað
til þær fleygðu okkur aftur á bak í átt til strandar. Við spruttum þó
tvíefld upp og réðumst á þær næstu.
 Frá Santíagó |
Föstudagurinn fór í skoðunarferðir um Santíagóborg. Við heimsóttum n.k.
Árbæjarsafn, þ.e. gamalt lítið þorp með safni þar sem við skoðuðum gömul
chilesk áhöld og fatnað. Þá kíktum við á náttúrugripasafn og á safn um
suður-ameríska menningu frá því fyrir tíma Kólumbusar. Var þetta mjög
áhugavert þó hitinn gerði okkur svolítið erfitt fyrir. Við erum þó
farin að venjast honum nokkuð vel að því undanskildu að nokkrir hafa
verið að kljást við ákveðinn slappleika og hósta en með jákvæðu
hugarfari reddast það allt!!!
Dagurinn endaði síðan á markaði þar sem við létum greipar sópa og tók
fararstjórninn þar fyrirmyndarhlutverk sitt sérstaklega föstum tökum!
:o)
Í morgunn sendum við skátana út af örkinni í faðm sinna nýju fjölskyldna
í Santíagó og hefur ekki til þeirra spurst síðan...
 Borgarleikhúsið í Santíagó |
Reyndar hringdum við í þau áðan og fengum miklar og góðar fréttir af
gangi mála hjá hverju og einu. Þau eru því þegar þetta er skrifað að
öðlast þá einstöku upplifun að vera gestir í heimahúsi í Chile. Mátti
vart á milli sjá hvor hópurinn var spenntari í morgunn skátarnir eða
fjölskyldurnar og fáum við að heyra alla sólarsöguna á morgunn.
Þá verður ferðinni heitið í sundlaug sem staðsett er einhversstaðar uppi
í fjöllunum og munum við örugglega fara víðar og kynnast enn fleiru ef
við þekkjum vini okkar Jorge og félaga rétt. Um kvöldið er svo stefnt
að því að kíkja í búðir, pakka og undirbúa brottför því á
mánudagsmorgunn höldum við af stað áleiðis til Íslands. Ræs er áætlað
klukkan 05 þann daginn og erum við þegar farin að hlakka til!
Þetta verða því væntanlega síðustu fréttir okkar héðan frá Chile en þó
er svissneskur vinur okkar og vefstjóri skátamiðstöðvarinnar í
Kandersteg með fjölda mynda af íslenska hópnum sem náðist ekki að senda
áður en mótinum lauk. Hann mun því senda þær til íslenska skátavefsins
um leið og hann nær að tengjast netinu sem verður einhvern tímann á
næstunni. Við hvetjum því alla til að fylgjast vel með vefnum.
Sjáumst hress um fjögurleytið á þriðjudaginn 12. janúar eftir hádegi í
Leifsstöð.
Salutas de Santiago,
Chilefarar
 |  |  |
Uppfært: 10. janúar, 1999 - 16:15 GMT.© 1998 - Netnefnd BÍS - Guðmundur Jónsson
Afritun án heimildar er leyfð ef Skátavefsins er getið með endurbirtingu efnis. Reproduction of material without permission authorized, giving credit to "www.scout.is". |
|---|