|
Hópurinn er þegar lagður af stað til Santíagó Héðan er allt gott að frétta. Blaðamannamiðstöðinni var lokað i gær, svo skeytið sem við vorum búinn að semja, komst ekki í gegn. Við erum á leið til Santíagó eftir örfáar mínútur, svo þetta verður stutt. Lokaathöfnin var stórkostleg, en tregablandin fyrir alla, enda yndislegum tíma lokið. Skemmtunin stóð í meira en klukkutíma og var aðalega byggð upp á suðuramerískum dönsum og atriðum frá fjöllistafólki. Það var svo ótrúlega sérstök stund, þegar allir 34.000 skátarnir endurnýjuðu skátaheitið á sinni tungu og sungu svo saman bræðalagssönginn. Þegar mótsstjórinn hafði lýst því yfir, að mótinu væri lokið, þá gengu mótsgestir til sinna búða. Mátti sjá tár í hvörmum margra, enda komið að kveðjustund og ekki víst að skátarnir munu nokkurn tíma geta hist aftur alla þá nýju vini, sem þeir hafa fundið hér. Framundan hjá íslensku skátunum er spennandi dagskrá. Fyrst verður kíkt í verslanir (já foreldrar góðir, nú er komið að því sem við óttuðumst mest!!! Börnin á leið í verslanir með VISA-kortin!!!) og því næst verður farið á stöndina og reynt að ná sér í brúnku. Daginn eftir verður svo farið í Tívolí. Síðan förum við í kynnisferð um Santíagó og nágrenni og endum svo dvöl okkar með því aö fara í sundlaug sem er hátt uppi í fjöllunum fyrir ofan Santíagó. Öllum líður vel og biðja að heilsa. Ég veit að skeytið er ekki á vandaðri og kjarnyrti íslensku og ég biðst afsökunar á því, en rútan er að koma eftir 5 mínútur og það er nóg eftir að gera!!!!!! Með skátakveðju, Bragi Björnsson Innskot Skátavefsins - Lítum nú á ferðaáætlunina af Chilesíðunni, Santíagó - Here We Come! Höldum til Santíagó, höfuðborgar Chile þar sem við munum dvelja í íþróttahúsi hjá Jorge Cerda Pedrero of félögum í skátafélaginu Alonso de Ercilla ásamt skátum frá Slóveníu. Sól, strönd, rölt í Santíagó, partý í íþróttahúsinu, kynnumst enn meira af frábæru fólki og… og… og… ![]() |