Skátavefurinn - www.scout.is
Sæl verið þið í kuldanum á Fróni .... hahaha ...! (9)
- Héðan er allt fínt að frétta og fólk á fullu í dagskrá og í því að kynnast nýjum vinum

Í fyrrakvöld var okkur boðið á kvöldvöku til Þjóðverja á næsta torgi og var það alveg stórfínt. Svo fínt að það þurfti ansi mörg "jæja" til að fá fólk til að yfirgefa svæðið. Var þetta tæplega fjörtíu manna sveit Þjóðverjar frá Suður-Þýskaland og var aðstoðarforinginn þeirra, hún Anne sem er á leiðinni til Íslands í sumar.


Frá alheimsþróunarþorpinu
Í gær var það svo alheimsþróunarþorpið sem fékk að njóta nærveru okkar fólks. Þar fóru skátarnir á skyndihjálparnámskeið, bjuggu til geymsluskrín með þjófavörn og margt margt fleira. Fararstjórnin lét taka myndir af sér (eðlilega! :o) ) og síðan var frjálst kvöld.

Fóru þá foringjarnir á vinnubúða- og eldri skátaklúbb mótsins, sýndu sig og sáu aðra. Hittum við þar m.a. þrjár stelpur frá Bólivíu sem við ræddum lengi við og fór vel á með okkur þótt langt sé á milli Bólivíu og Íslands. Allir voru sammála um að jamboree væri stórkostlegur viðburður þar sem ótrúlegir hlutir gerðust eins og að skátar frá jafn fjarlægum löndum og Íslandi og Bólivíu næðu saman. Einnig sögðu þær okkur frá því að samskipti milli Chile og Bóliviu væru ekki upp á það allra besta dags daglega en slíkir smámunir skipta ekki máli þegar jamboree er annars vegar enda mættu Bólivíumenn með hvorki meira né minna en 814 skáta hingað á Jamboree til Chile.


Þetta er ekki kassabíllinn þeirra, en
hér er slökkviliðið að berjast við
skógarelda nærri tjaldbúð þeirra
Í dag fórum við í það sem kallað var 'Tournament' eða 'Leikar'. Átti það upphaflega að standa yfir í heilan dag og vera verkefni fyrir hádegi og vatnasafarí eftir hádegi. Var búið að búa til sérstakt stöðuvatn til þess að nota í vatnabuslið. Hér hefur hins vegar ekki rignt í 18 mánuði og urðu Chilebúarnir að ákveða hvoru ætti að fórna, uppskeru ársins eða vatninu. Eðlilega var tappinn tekinn úr vatninu og uppskerunni bjargað en það leiddi til þess að Leikarnir urðu bara hálfsdagsverkefni þar sem vatnabuslið datt út.

Í morgunn tókum við því þátt í verkefnum sem kölluðust Járnflokkurinn og Járnvagninn. Ég hef ekki ennþá heyrt fréttir af Járnflokknum sem fór í þrautabraut eina mikla sem Chileski herinn hafði búið til en ég fór hins vegar í Járnvagnsverkefnið sem var n.k. kassabílarallý nema að bílarnir voru úr járni og voru fjögurramanna. Hins vegar voru níu í liði og fengum við tvo Svía að láni í okkar lið sem stóðu sig eins og sönnum víkingum sæmir. Um var að ræða að fara u.þ.b. 2 km leið með bílinn eftir þröngum og holóttum skógarstígum, upp og niður brekku sem var hreint ekki auðvelt verk í rúmlega 30 stiga hita. Margrét og fleiri áttu þarna stórleik undir stýri og er þarna auðsjáanlega upprennandi

Heimasíða Kandersteg miðstöðvarinnar í Sviss
jeppafólk á ferð.

Á eftir verður tekin hópmynd af Íslendingunum og klukkan 21 í kvöld bjóðum við á kvöldvöku í íslensku búðunum og verður þar vonandi margt um manninn og mikil gleði.

Loks ber að geta að ég fékk lánaða stafræna myndavél hjá vini mínum sem sér um vefinn í alþjóðlegu skátamiðstöðinni í Kandersteg í Sviss. Hann er einmitt aðdáandi íslenska skátavefjarins númer eitt og vildi ólmur lána mér myndavélina sína til að koma á íslenska skátavefinn. Meira að segja gæti verið að einhverjar myndanna fari einnig inn á Kanderstegvefinn. Kíkið því á www.kisc.ch - Farið inn í 'Mystery' og þaðan á jamboreeið. Einnig getið þið fundið okkur í gestabókinni þar.

Það eru því fleiri myndir á leiðinni svona hvað úr hverju!

Með eldheitri Jamboreekveðju,

Siggi Úlfars.
sveitarforingi
Jamboreesveitarinnar Óðins


Auglýsing

Uppfært: 4. janúar, 1999 - 20:30 GMT.
© 1998 - Netnefnd BÍS - Guðmundur Jónsson
Afritun án heimildar er leyfð ef Skátavefsins er getið með endurbirtingu efnis.
Reproduction of material without permission authorized, giving credit to "www.scout.is".