Skátavefurinn - www.scout.is
Hitinn að gera útaf við alla - nema Íslendingana (8)
- jafnvel Afríkubúar og Ástralir að skrælna upp í suðræna hitanum

Vegna tæknilegra örðuleika gekk illa að baka pönnukökurnar í gær og því fór svo, að nokkrir skátar voru að langt fram á nótt við baksturinn. Síðan vöknuðum við klukkan sex í morgun við það að torg í nágrenninu var ræst með glymjandi poptónlist, sem að sjálfsögðu virti enginn þorpsskil og vakti alla aðra.

Við tóku hefðbundin morgunverk, en svo var lagt af stað í rútum út fyrir mótssvæðið. Annar hópurinn fór og skoðaði rafveitu en hinn heimsóti bóndabæ. Ekki fannst okkur Íslendingunum raforkuvirkjunin merkileg, enda hálfrar aldar gömul og ekki stór á okkar mælikvarða. Hins vegar fannst skátunum, sem fóru á bóndabæinn, sérstakt að geta gengið út á akranna og tínt upp í sig suðræna ávexti beint af trjánum. Einnig fengu þau að smakka hunang sem framleitt var þarna á staðnum. Loks hittust allir Íslendingarnir á stórum "ródeó" leikvangi, þar sem boðið var upp á síðbúinn hádegismat og hægt var að versla margskonar glingur frá innfæddum, sem voru með sölubása á svæðinu.

Við í fararstjórninni tók eftir því, að mikil öryggisgæsla var á svæðinu og einungis skátum hleypt inn sem og þeim sem leyfi höfðu til að selja vörur og þjónustu á svæðinu. Einnig voru tveir slökkviliðsbílar og tveir sjúkrabílar á staðnum ásamt sveit af skyndihjálparfólki. Einnig vekur það athygli okkar, að rúturnar fá fylgd herlögreglumanna á mótorhjólum sem hika ekki við að stöðva umferðina þannig að rúturnar komist sem skjótast á milli staða.

Þegar við vorum að yfirgefa leikvanginn lentum við hins vegar í því að þurfa að bíða mjög lengi eftir Chílebúum sem voru með öðrum íslenska hópnum í rútu. Það er svolítið nýtt fyrir okkur þessum stundvísu!!! íslensku skátum, að það þykir ekkert mál að mæta 30 mínútum of seint og að heil rúta bíða eftir þér. Þessi töf var til þess að við mættum á síðustu stundu í Norðulandamóttökuna. Það kom þó ekki í veg fyrir að við slægjum í gegn með skemmtilegum og hressum söng og fengu íslensku skátarnir mikið klapp fyrir sitt atriði.

Við dreifðum svo auglýsingu fyrir Nordjamb, þar sem vakin er athygli á heimsíðu BÍS, en við höfum verið að dreifa þessum merkjum að undanförnu og ávallt vakið athygli á heimsíðunni. Hafa sumir farið beint í það að skoða hana og komið svo aftur að máli við okkur og verið hrifnir. Einhverjir Chile-búar voru þó ekki alveg sáttir við málfræðina í spænsku hluta síðurnnar!!!!

Við báðum þá vinsamlegast um að senda leiðréttingar, en ef ég þekki þá rétt, verður nú bið á því, þar sem mottóið í þessu landi virðist vera "á morgun", það er aldrei hægt að leysa nein mál strax, allt verður að gerast á morgun (innskot Skátavefsins: Spænskan er þýdd með sömu tölvu og sú sem þýddi spænskuna yfir í ensku í fréttapunktum úr heimablöðum, sem birt var hér í 3. frétt þann 30. desember s.l. og ekki er sú þýðing mikið betri - en lesanleg að mestu leiti).

Íslensku skátarnir eru nú að leið á kvöldvöku hjá þýskri sveit en svo ætla flestir snemma í háttinn enda dagurinn í dag búinn að vera langur og strembinn og hitinn mjög mikill. Eru innfæddir jafnt sem Afríkubúar og Ástralir sem eru vanir miklu hita alveg að gefast upp en við fólkið frá kalda landinu stöndum okkur alveg eins og hetjur, enda vel undirbúin.

Við þökkum öllum sem hafa sent okkur skeyti og góðar kveðjur og munum láta heyra í okkur von bráðar.

Bragi Björnsson,
fararstjóri íslenskra skáta á 19. heimsmót skáta í Chíle


Auglýsing

Uppfært: 3. janúar, 1999 - 01:25 GMT.
© 1998 - Netnefnd BÍS - Guðmundur Jónsson
Afritun án heimildar er leyfð ef Skátavefsins er getið með endurbirtingu efnis.
Reproduction of material without permission authorized, giving credit to "www.scout.is".