Skátavefurinn - www.scout.is
Sæl verið þið, ...og aftur - gleðilegt nýtt ár! (7)
- já, enn fleiri myndir og nýársfréttir frá Chileförum


Sigrún Heiðarbúi fær sér vatn að drekka
- og veitir ekki af í hátt í fjörtíu stiga hita!
Þá er maður svona við það að komast niður á jörðina eftir gærkvöldið. Þetta var æðislegt! Á miðnætti var mótssöngurinn spilaður og þá trylltist allt! Ég var staddur frekar framarlega umkringdur fólki alls staðar að og það flæddi gleðistraumur yfir hópinn. Þetta var eins og að verða fyrir stórri öldu nema að þessi fór beint inn í blóðrásina, áfram inn í hjarta og fyllti það gjörsamlega svo flóði út úr.

Fólk týndist flest heim fljótlega upp úr því þegar gleðinni lauk um klukkan tvö, svo örþreytt að það mátti vart mæla. Þá sungum við okkur aðeins í ró og síðan var haldið í háttinn.

Fyrr um kvöldið, þ.e. klukkan 21 þegar klukkan var á miðnætti heima skáluðum við í Sprite með regnhlífum og rörum, sungum áramótasöngva og öskruðum þrefalt húrra fyrir sjálfum okkur, landinu okkar og heiminum öllum áður en við héldum yfir til Chilebúanna og borðuðum taco með þeim.


Nágrannar okkar frá Slóvakíu
Ingibjörg Guðmunds. sveitarforingi fer hér hamförum á spænskunni og hefur hún gert margt auðveldara, allt frá því að endurheimta týnda myndavél á flugvellinum í Madrid til þess að lesa á matarumbúðirnar í stórmarkaði mótsins. Er ekki spurning að mjög æskilegt er að einhver tali tungumál innfæddra þegar haldið er í svona ferð.

Nýársdagur er svona í rólegri kantinum. Við gátum sofið fram eftir, fólk þvoði fötin sín, tók til í tjöldum sem svo reyndar endaði með einum allsherjar alþjóðlegum vatnsslag sem Íslendingar hófu af sinni alkunnu snilld og fengu tugi skáta alls staðar að úr heiminum í lætin. Er skemmst frá því að segja að hver einasti fékk það sem hann leitaði að, þ.e. þau urðu holdvot frá hvirfli til ilja.


Ingibjörg sveitarforingi fór fimum fingrum um pönnu-
kökupönnuna þegar Íslendingar buðu gestum og
gangandi upp á pönnukökur með sykri

Helga Rós fær sér unna Chilesveskju frá Jorge
félagsforingja hópsins sem mun taka á móti
okkur í Santíagó eftir mót


Helga Rós, Garðbúum og Guðjón, Kópur
Í kvöld er það svo undirbúningur fyrir sameiginlega móttöku Norðurlandanna sem aðallega liggur fyrir. Móttakan er í formi nokkurs konar kokteilboðs fyrir fulltrúa hverrar þjóðar mótsins auk mótshaldara, vina og kunningja okkar Norðurlandabúanna, þ.e. einhverjir sem okkur langar að bjóða sérstaklega.

Þarna munum við bjóða upp á pönnukökur sem þarf að baka í kvöld, kynna landsmótið skáta á Íslandi næsta sumar sem og NordJamb2000 dróttskátamótið sem við höldum árið 2000 fyrir hönd Norðurlandaskáta. Þá munum við syngja landsmótssönginn nýja og fleiri velvalin íslensk lög sem æfð verða í kvöld.

Ótrúlegur fjöldi fólks hefur komið að máli við okkur og sýnt merkilega þekkingu og áhuga á Íslandi. Þar er um að ræða fólk sem hefur ferðast um landið, foreldrar eða vinir þess hafa ferðast um landið, þátttakendur á síðustu landsmótum á Íslandi, fólk sem ætlar að mæta á næsta landsmót í sumar, skiptinema sem eru annað hvort á leiðinni til Íslands eða búnir að vera þar, eldheitir aðdáendur Bjarkar Guðmundsdóttur o.s.frv. o.s.fr.v. Allur þessi straumur hefur komið okkur töluvert á óvart og þá sérstaklega hvað margir eru í raun vel að sér um land og þjóð.


Íslenskir skátar gæða sér á Ópal á Heimsmóti skáta - Jamboree - í Chile
Á morgunn (2. janúar) er stefnan sett á verkefni sem kallast "The Earth which Provides for Us" (illa þýtt: Jörðin sem gefur okkur af sér). Þar er um að ræða að við förum með rútum út af mótssvæðinu (ásamt 4.000 öðrum skátum) og heimsækjum ýmsa aðila sem vinna neysluvörur úr náttúrunni. Mér skylst að okkar ferð sé heitið í kjúklingabú og rafveitu.

Kær kveðja af heimsmóti skáta - World Jamboree - í Chile.

Siggi Úlfars.
sveitarforingi

Smellið hérna til til að fara til baka á fyrri síðu dagsins


Auglýsing

Uppfært: 2. janúar, 1999 - 03:55 GMT.
© 1998 - Netnefnd BÍS - Guðmundur Jónsson
Afritun án heimildar er leyfð ef Skátavefsins er getið með endurbirtingu efnis.
Reproduction of material without permission authorized, giving credit to "www.scout.is".