Skátavefurinn - www.scout.is
Myndir og góðar fréttir frá heimsmóti Chile (6)
en hér er greinin frá gamlársdag sem náði ekki alla leið í gær


Bebba og Sigrún, Heiðabúar fengu alveg nýja sýn á stafsetningu
þegar Japanarnir kenndu þeim að skrifa nafnið sitt upp á nýtt
Halló halló halló Ísland!!!!

Loksins það sem allir hafa beðið eftir, - Myndir af íslensku skátunum af Heimsmóti skáta í Chile! Stafræna myndavélin sem við komum með hingað hefur ekki virkað sem skildi og því höfðum við samband við Danina, vini okkar og fengum lánaða hjá þeim eitt stykki myndavél.

Þeir brugðust við af einskærri góðsemi og lánuðu okkur gripinn. Lánið stóð þó ekki yfir nema í eina og hálfa klukkustund þar sem þeir þurftu að nota hana eftir þann tíma. Því vantar kannski nokkra úr hópnum á myndirnar sem voru einhversstaðar í heimsókn að heilsa upp á og eignast nýja vini.


Ingibjörg Rós, afmælisbarn gærdagsins bauð öllu þorpinu
í pönnukökur með sykri í dag. Langflottust!
Í dag er gamlársdagur, þótt flest okkar eigi erfitt með að trúa því, 35 til 40 stiga hiti og þvílík sól. Dagurinn byrjaði vel því klukkan átta í morgunn komu tveir Þjóðverjar til okkar og buðu okkur á kvöldvöku þann 2. janúar. Annar Þjóðverjinn er nefnilega að koma til Íslands í ferðalag næsta sumar og vill endilega kynnast íslenskum skátum. Er til betri leið til þess einmitt að bjóða þeim á kvöldvöku?

Klukkan hálf níu komu allir á torginu okkar saman sungum aðeins og lékum okkur. Síðan var klárað að setja upp fánastöng og tekið til í tjaldbúðinni auk þess sem Bragi og Siggi fóru á fund með fararstjórum Norðurlandanna vegna móttöku sem Norðurlöndin munu halda sameiginlega

Siggi Úlfars. sveitarforingi, Skjöldungum kominn með
hvorki meira né minna en þrjár seniórítur upp á arminn!
klukkan 18 þann 2. janúar. Íslendingunum var falið það verkefni að dreifa boðskortum og því svifum við á alla höfðingja sem við sáum, þar með talda mótsstjórann Patrick Lyon, stjórnarformann WOSM Franco Roman og framkvæmdastjóra WOSM Jacques Moreillon og fleira merkilegt fólk sem við fundum auk allra sætu stelpnanna sem við buðum auðvitað líka.

Nú á eftir koma allir saman og kynna söngva eða dans frá sínu landi. Þar munum við að sjálfsögðu slá í gegn eins og alls staðar annarsstaðar!!!!

Með sólaráramótakveðju til allra á Íslandi,

Skátarnir 19 í Chile

Smellið hérna til þess að sjá nýjustu myndirnar sem komu þegar ég ætlaði að fara að sofa

Við munum halda áfram með daglegar fréttir frá Chile um helgina, nýjar fréttir daglega í fjölmiðlinum ykkar! Munið, að á sunnudaginn ætlum við að reyna að ná sambandi við Chilefarana í útvarpsþælttinum "Hemmi í beinni" sem verður á Bylgjunni á sunnudaginn frá klukkan 13:00 til 15:00. Hlustið á þáttinn!


Auglýsing

Uppfært: 2. janúar, 1999 - 01:40 GMT.
© 1998 - Netnefnd BÍS - Guðmundur Jónsson
Afritun án heimildar er leyfð ef Skátavefsins er getið með endurbirtingu efnis.
Reproduction of material without permission authorized, giving credit to "www.scout.is".