<

Skátavefurinn - www.scout.is
Halló frábæra Ísland!!! (5)
Fyrsta myndin er komin og þau ætla að senda okkur fleiri myndir


Íslenskir skátar í góðum hópi Chileskra skáta og skáta frá fleiri löndum

Það getur þó ekkert komist með tærnar þar sem þetta geðveika áramótapartý sem ég stakk alveg óvart af úr þar sem ég gat ekki talað lengur eða sungið. Þrjátíu þúsund manns í baaaaaanastuði, ca. 15 til 20 stiga hiti og þvílíkt fjör. Það eru búnar að vera þrjár hljómsveitir hérna og núna er plötusnúður að þeyta liðinu upp til stjarnanna! Þvílík upplifun!!!!

Franco Roman, stjórnarformaður WOSM (Chairman of the World Scout Committee) ávarpaði fjöldan á miðnætti og sagði að þau hjóninn hefðu skilið börnin eftir heima en það væri í lagi þar sem hann væri hérna með stórri fjölskyldu sem væru yfir þrjátíuþúsund skátar frá eitthvað, ja, ég hef heyrt töluna 150 lönd, 170 lönd og 180 lönd en veit ekkert hvað er satt - enda kannski aukaatriði. Þessi ræða tók hann 30 sekúndur og verður hann að teljast langflottastur fyrir vikið!

Krakkarnir eru einhversstaðar á full swing með fosfórljós um hálsinn og hafa útivistarleyfi til þrjú í nótt. Það verða þó örugglega fá sem lifa af svo lengi! :o)

Við borðuðum kvöldmat í kvöld með Chilebúunum í næstu búðum, Taco og fínerí og sungum milli skammta. Það verður að segjast að hingað safnast þvílíkt ótölulegt magn af gleði að það hálfa væri hellingur!

Einnig komum við fram á sviðinu fyrir framan hátt í þúsund manns þar sem Bebba og Ingibjörg Guðmunds. kynntu og við sungum Krummi krunkar úti, Kátir voru karlar og Hresstu þig við og auðvitað eins og áður þegar Íslendingarnir eru á ferðinni áttum við auðvitað svæðið!

Heyrumst á morgun í baaanastuði!!!
Áramótakveðja frá Chileförum. Við erum sko hvorki í fjórða né fimmta gír því fluggírinn er sá eini sem gæti lýst okkur núna.

Siggi Úlfars.

Ps. Ég fékk lánaða myndavél hjá Dönunum í dag og náði að taka nokkrar myndir en náði því miður ekki að senda þær. Tekst vonandi á morgun.


Auglýsing

Uppfært: 1. janúar, 1999 - 06:50 GMT.
© 1998 - Netnefnd BÍS - Guðmundur Jónsson
Afritun án heimildar er leyfð ef Skátavefsins er getið með endurbirtingu efnis.
Reproduction of material without permission authorized, giving credit to "www.scout.is".