Afmæli, skógareldar, samba og hæk í Chile (4)
Hver dagur er öðruvísi hjá þeim og það líkar þeim vel!
Heimsmót skáta í Picarquín - 30. des. 1998:
 Skátar hvíla sig í hækferðinni |
Þá er árið næstum á enda sem þýðir aðeins eitt, gamlársdagur á morgun! Síðustu nótt eyddi hluti hópsins í hækferð í hlíðum Andesfjalla þar sem horft var á stjörnurnar og tunglið sem baðaði allt geislum. Stórkostlegt, en þó ekki jafn stórkostlegt og fólkið sem á staðnum var. Þarna uppi í fjalli settumst við hjá nokkrum stelpum frá Chile og
kenndum þeim "Da ram dam daram" og þær kenndu okkur þrælerfiðan leik sem við munum flytja heim á leið á nýju ári.
Á eftir var svo kvöldvaka þar sem á annað hundrað manns sem gisti þarna uppi á fjalli tók þátt í og kenndu alls kyns leiki og hreyfisöngva. Þar var komið að honum Jóni í Kassagerðinni að vera fulltrúi Íslands á staðnum og sló hann að sjálfsögðu í gegn!
Á meðan á þessu stóð, var hinn helmingur hópsins í partýi hjá annarri sveit frá Chile, nágrönnum okkar á mótssvæðinu. Þar var ekki minna sungið og trallað, borðuð hrísgrjón að hætti tjaldsins.
Í dag var það svo Alheimsþróunarþorpið
 Það er ekki hægt að fá nýrri ávexti en þarna í ávaxtamarkaðnum |
sem fékk að njóta samvista við okkur. Fyrir hádegi var það handverk að hætti Suður- og Mið-Amerískra, þar sem búnir voru til Mexikóahattar, armbönd, veski og allt sem nöfnum tjáir að nefna.
Eftir hádegi voru það hins vegar vísindin sem fengu að njóta krafta okkar þar sem margir bjuggu t.d. til ilmvötn og má finna angan
 Þau unnu í alþjóðaþróunarþorpinu í dag |
svífa yfir vötnum.
Í dag urðum við einnig vitni af skógareldum sem áttu sér stað 400 metrum ofan við tjaldbúðina okkar. Hér hefur ekki rignt í 18 mánuði, þannig að jörðin er mjög þurr. Slökkvilið kom á staðinn, en loks voru það eldvarnarþyrlur sem köstuðu vatnssprengjum yfir eldinn og slökktu í. Var þetta æði æsileg sjón þótt mörgum brigði í brún.
 Skátarnir í Chile skoða Skátavefinn okkar og eru í tölvusambandi við aðra skáta |
Síðast en ekki síst er hún Ingibjörg Rós, Ægisbúi heilu ári eldri í dag, en hún var í gær. Í tilefni af því bauð hún, í boði hópsins, okkur út að borða á veitingastað mótsins, þar sem afmælissöngurinn ómaði á
fjölda tungumála og ræður voru haldnar.
Nú er hópurinn á sambagleði mikilli og við á mikilli ferð þangað í þeirri von að ná í endann á þeim áður en yfir líkur.
Með sjóðheitri, léttsteiktri en þó fremur rauðri kveðju úr 38 stiga hita í Chile milli jóla og nýárs!!!
Chilefarar
 |  |  |
Uppfært: 31. desember, 1998 - 03:45 GMT.© 1998 - Netnefnd BÍS - Guðmundur Jónsson
Afritun án heimildar er leyfð ef Skátavefsins er getið með endurbirtingu efnis. Reproduction of material without permission authorized, giving credit to "www.scout.is". |
|---|