Skátavefurinn - www.scout.is
Góðan daginn frá Chile (2)
- 34,000 skátar frá 180 löndum voru á opnunarhátíðinni í gær!

Heimsmót skáta í Picarquín - 29. des. 1998:
Nú á þriðja degi er stemmningin í íslenska hópnum frábær. Öll minniháttar vandmál hafa verið leyst og skátarnir geta núna einbeitt sér að fjölbreyttri dagskrá og unnið að því að stuðla að friði saman. Í dag fara Íslendingarnir í sólarhrings-hike, en ekki er lagt af stað fyrr en síðegis vegna hitans. Þau munu gista undir berum himni og reyna að ráða í stjörurnar, en þær snú allar "öfugt" hérna hinum megin á hnettinum!

Frá setningarhátíð heimsmótsins

Í gærkvöldi var opnunarhátíðin. Því miður er ekki hægt að lýsa stemmningunni í orðum en hún var mögnuð. 34.000 skátar frá 180 löndum söfnuðust saman á hátiðarsvæðiunu. Á meðan mannfjöldann dreif að, en það tók um klukkustund að safna öllum saman á torgið, skemmtu skátarnir hver öðrum með leik og söng.


Þjóðirnar kynna sig fyrir setningu
Í mannhafinu mátti sjá Brasilíumenn dansa Samba undir trumbuslætti argentískra skáta, í fjarska ómaði sekkjapípa sem boðaði komu skosku skátanna og Íslendingar kenndu chielenskum skátum "Höfuð, herðar, hné og tær". Það var stórfengleg sjón að líta yfir hátíðarsvæðið og sjá 34.000 skáta í skátabúningum og fána hina ýmsu þjóða blakta yfir mannfjöldann.


Mismunandi og litrík menning á einum stað
Eftir töluverða bið, kom svo forseti Chile, Eduardo Frei og ávarpaði samkomuna og hvatti skáta til dáða og minnti á tilgang mótsins - að stuðla að friði í heiminum. Í kjölfarið setti mótstjórinn mótið og leysigeislar myndudu verndarhjúp yfir höfdum skátanna. Hápunktur athafnarinnar var svo þegar 34.000 skátar sameinuðust í mótsöngnum og áhrifin voru slík, að margir fengu gæsahúð af hrifningu!!


Flóttamannahjálp SÞ er kynnt á mótinu
Setningu lauk svo með því að fullskipuð sinfóníuhljómsveit og 100 manna kór skemmti gestum með chílenskum þjódlögum á meðan sýndar voru myndir frá Chíle á þremur risaskjám. Athöfninni var sjónvarpað beint til um 100 landa.


Landslagið er fallegt í Chile
Þar sem íslenska farastjórnin hefur haft í mörg horn að líta, var standur Íslendinga ekki opnaður fyrr en seint í gær, en vakti strax athygli og komu t.d. skátar frá Hollandi að máli við okkur, sem ætla á Landsmótið, skáti frá Japan sem hafði verid á Landsmótinu í Kjarnaskógi 1993 og margir fleiri. Einnig komu gestgjafar okkar í Santíagó eftir mótið og ræddu dvöl okkar þar.

Að lokum sendum við öllum heima skátakveðju, okkur líður vel í sólinni og hitanum og vonum að ykkur líði ekki svo illa í snjónum heima.

Bragi Björnsson,
fararstjóri íslensku Chilefaranna

Auglýsing

Uppfært: 29. desember, 1998.
© 1998 - Netnefnd BÍS - Guðmundur Jónsson
Afritun án heimildar er leyfð ef Skátavefsins er getið með endurbirtingu efnis.
Reproduction of material without permission authorized, giving credit to "www.scout.is".