Þau eru mætt á svæðið (1)
 Chilefararnir eru núna komnir í sólina og fjörið í Chile |
Þetta er búin að vera löng ferð hjá þeim. Þau lögðu af stað í gærmorgun frá Keflavíkurflugvelli, flugu til London og þaðan til Madríd á Spáni. Eldsnemma í morgun flugu þau síðan til Santíagó í Chile og drifu sig þá strax á mótssvæðið. Smá tæknilegir byrjunarörðuleikar komu í veg fyrir að við fengjum fréttir af þeim strax, en núna hafa þeir komið þeim áleiðis.
Bragi fararstjóri sendi bróður sínum, Guðmundi Björnssyni á SSR skeyti, sem hann kom áleiðis á skátalistann (við birtum það hér líka) og svo er aðal-fréttasnápurinn okkar, Sigurður Úlfarsson vel tengdur núna og þegar búinn að senda fyrstu frétt. Þessa stundina eru þau að hlaða stafrænu myndavélina og munu fljótlega senda okkur myndir af sér.
En hér er fyrst skeytið frá Sigurði Úlfarssyni og síðan látum við bréfið frá Braga flakka með:
Halló halló Ísland!!!!
Heimsmót skáta í Picarquín - 28. des. 1998:
Hér er íslensk jólastemning, 35 stiga hiti og sól! :o) Er ykkur kalt?????
Annars gengur allt í fína og við eldhress. Okkur vantar að komast í rafmagn til ad hlaða upp stafrænu myndavélina, þannig að þegar það
gengur upp, fáið þið sendar myndir frá okkur - fallega fólkinu.
Staðsetning okkar breyttist aðeins. Nú erum við í þorpi A - Subcamp: Dakota. Semsagt, allt í botni og setningarathöfn i kvöld. Með hamingjukveðju frá heitasta stað i heimi!!!
Jamoboreekveðja,
Siggi Úlfars.
sveitarforingi
Heil og sæl öll
Heimsmót skáta í Picarquín - 28. des. 1998:
Til stóð að íslensku Jamboree-fararnir myndu senda fréttir beint á netið um leið og þau kæmu á mótsvæðið í Chile. Þar sem einhver tæknileg vandræði eru varðandi nettengingar, brá fararstjórinn, Bragi Björnsson, á það ráð að útvega sér blaðamannapassa og gat því hringt í undirritaðan til að koma skilaboðum heim.
Hér eru nokkur fréttakorn af íslensku Jamboree-förunum.
Eftir 30 tíma ferðalag frá Keflavík um London og Madrid lentu þau útsofin og fín í Santiago. Þar var skipulag allt mjög gott og tók það þau aðeins 30 mín að komast í rútu sem fluttu þau á áfangastað.
Þess má geta að þau þurftu að bíða í tæpa 7 tíma í London eftir tengiflugi og var tíminn notaður til að skoða Big Ben, Downing stræti 10 og fleiri merka staði. Vakti hópurinn hvarvetna eftirtekt því margir skátar voru aðeins á skátaskyrtunni þrátt fyrir slagveður.
Þau voru búinn að tjalda um kvöldmatarleiti að Chile tíma í gær og koma sér fyrir ( 4 klst. tímamismunur, GMT -04:00).
Þegar Bragi talaði við undirritaðan um 18:30 að íslenskum tíma var allt í fullum gangi og íslensku karakkarnir að skemmta sér konunglega við alþjóðlega skátun. Hann sagði að mótsvæðið væri frábært, það eina sem hefði klikkað þar til þessa væri að vatnasafaríið væri þurrt sökum þurrkatíðar. Á mótsvæðinu væri nú +30° hiti og glampandi sól og allir íslensku skátarnir með sólarolíuna á lofti. Bragi hafði orð á því hvað krakkarnir stæðu sig vel og væri góður undirbúningur að skila sér nú.
Þau báðu öll fyrir góðar kveðjur til allra hér heima og vonast til að komast í beint netsamband hið fyrsta.
Guðmundur Björnsson,
Skátasambandi Reykjavíkur
 |  |  |
Uppfært: 28. desember, 1998.© 1998 - Netnefnd BÍS - Guðmundur Jónsson
Afritun án heimildar er leyfð ef Skátavefsins er getið með endurbirtingu efnis. Reproduction of material without permission authorized, giving credit to "www.scout.is". |
|---|