Skátavefurinn - www.scout.is
Annað um dvölina í Chile
Handbók Jamboreefara (14)

Dvöl hjá félögum í skátafélaginu Alonso de Ercilla í Santíagó

Sá skemmtilegi siður hefur skapast að skátum sem heimsækja önnur lönd sem þátttakendur á skátamótum stendur til oft boða að hitta skáta frá viðkomandi löndum. Oft er þetta í formi heimsóknar í heimahús eða skátaheimili. Þetta heimsmót er engin undantekning frá þessu, þó að ekki hafi verið unnt að sinna öllum beiðnum um slíkt. Við munum njóta gestrisni skátafélags í Santiago. Í þessum skrifuðum orðum eru vinir okkar í óða önn að skipuleggja móttöku okkar til höfuðborgar Chile, Santiago.

Það sem við vitum í dag er að við munum dvelja í íþróttahúsi ásamt 120 skátum frá Slóveníu. Siggi Úlfars. er í tengslum við góðan vin sinn sem sér um Slóvenana þannig að ekki ætti að væsa um okkur í nærveru þeirra. Enn og aftur minnum við á fyrsta boðorðið! Santiago verður skoðuð, skroppið á ströndina, við munum hitta skáta frá svæðinu og vonandi komast í heimsókn, auk þess sem mikið partý mun verða sett upp í íþróttahúsinu fyrir okkur og Slóvenana.

Við verðum alltaf að muna að við erum gestir þeirra skáta sem taka á móti okkur og því ber okkur að sýna fyllstu kurteisi og tillitssemi og umfram allt vera jákvæð í þeirra garð. Reynslan hefur sýnt okkur að þessir dagar munu verða okkur ógleymanlegir og oftar en ekki hafa skapast órjúfanleg vináttubönd milli þeirra skáta sem eyða stundum saman þessa daga.

Gjafir

Líklegt er að við öll munum kynnast einhverjum sem við viljum þakka fyrir ánægjuleg kynni eða aðstoð. Það er að sjálfsögðu hægt að þakka fyrir sig á margan hátt og verður hver og einn að finna hjá sjálfum sér hvernig best er að fara að því. Hópurinn í heild mun gefa mótinu og þeim sem mun taka á móti hópnum gjafir, þ.e. skátaklút með ísaumuð þau merki sem eru á íslenska skátabúningum og félagsmerkjum skátanna í hópnum. Fararstjórnin vill hins vegar benda þátttakendum á litla bók um Ísland sem er hentug gjöf til þeirra sem þið viljið gleðja eða þakka sérstaklega, þ.e. bókinn, "ICELAND'S TREASURED GIFTS" eftir Pál Ásgeir Ásgeirsson (ISBN: 9979511044) auk fararmerkis ferðarinnar. Einnig skal bent á nýtt merki sem BÍS hefur látið hanna með bandalagsmerkinu og íslensku fánalitunum. Svo má auðvitað nefna t.d. litla hraunmola, íslensk skátamerki eða aðra skemmtilega íslenska smáhluti. Hafið í huga að þið gætuð viljað hafa nokkrar gjafir og því nauðsynlegt að miða við eitthvað lítið og létt og geta í staðinn gefið mörgum.

Gjaldmiðill

Gjaldmiðillinn í Chile heitir "peso" og skiptist í 100 "centavos" og var gengi hans þann 19. október þannig að 1 peso var jafn og 0,1469 íslenskar krónur (1 ISK = 6,8074 CLP).

Á flugvöllunum á leiðinni munum við geta notað bandaríska dollara og kreditkort.

Bankar

Því miður hefur ekki verið hægt að fá staðfest á hvaða tímum bankar eru opnir en búast má við því að þeir séu almennt opnir alla virka daga nokkrar klukkustundir í senn. Stefnt er að því að hópurinn fari allur saman að taka út reiðufé í Santíago og fái við það aðstoð innlendra skáta.

Þjórfé og prútt

  • Á veitingastöðum er gefið 10% þjórfé.
  • Leigubílstjórar fara hins vegar ekki fram á það en þó er almennur siður að rúna upphæðina að næstu "þægilegu" tölu.

    Íslendingum hefur alltaf þótt skrítið að þurfa að gefa þjórfé því á Íslandi er svokallað þjónustugjald innifalið í verði vörunnar. Víðast hvar erlendis er það þó ekki svo. T.d. í Chile er þjónustufólk á veitingastöðum á mjög lágum launum þannig að hafi fólk á annað borð efni á því að borða úti þá hefur það efni á því að gefa þjórfé.

    Á mörkuðum og gagnvart farandsölufólki ýmiss konar tíðkast það að prútta. Uppgefið verð er sjaldan það verð sem hægt er að fá vöruna á. Annar aðilinn fer yfirleitt ekki vel út úr viðskiptunum og langoftast er það ferðamaðurinn! J Því munu þátttakendur þurfa að gæta sérstakrar varúðar í viðskiptum sínum á slíkum mörkuðum.

    Skilaboð frá vinum okkar í Chile

  • "Þegar þið takið leigubíl spyrjið um verðið á farinu fyrirfram.
  • Fylgist með því að leigubílstjórinn setji mælinn í gang þegar þið komið inn. Það á hann að gera en ekki fyrr!
  • Upphæðin sem þið eigið að borga sést á skjánum.
  • Leigubílstjórar fá yfirleitt ekki þjórfé en þó er hefð fyrir því að rúna töluna upp að þægilegri tölu."

    Í öllum tilfellum skal þó minnt á almenna kurteisi í samskiptum við fólk.

    Verðlag í Chile

    Til að gefa ykkur einhverja hugmynd um verðlag í Chile er hér listi yfir nokkra hluti og hvað þeri kosta. Öll verð sem eru gefin upp eru í bandarískum dollurum (USD - $).

    Gosdrykkur (Coke, appelsín, 7-up, o.þ.h.) (Stórmarkaðsverð) $0.63

    Ís $0.80 - $1.05

    1 ltr. mjólk $0.80

    1 Súkkulaðistk. (Mars, Snickers o.þ.h.) $0.50

    1 cup of coffee or tea (restaurant) $0.70

    1 Samloka með skinku og osti $0.80 - $1

    Gosdrykkur (Coke, appelsín, 7-up, o.þ.h.) (Veitingastaðir) $0.80 - $1

    1 sælgætispoki $0.80

    1 kg. ferskjum (6 stk) $0.80

    1 ltr. Sódavatn (stórmarkaður) $0.95

    1 bíómiði $5.26

    1 strætómiði (innan Santiago) $0.40

    1 neðanjarðarlestarmiði (hvert sem er) $0.50

    1 póstkort $0.40

    1 frímerki til Ameríku eða Evrópu $0.70

    1 Hádegisverður á veitingastað $5-6

    1 Símtal innanbæjar (3 mínútur) $0.25

    Kvöldverður á flottum veitingastað $22-32

    1 Big Mac $3.68

    1 Kg Brauð $1-1.15

    Levi`s 501 gallabuxur $19-44

    Góðir Nike íþróttaskór (eða svipaðir) $26-76

    Regnjakki $76-126

    Geisladiskur (CD) $4.20

    Skátabúningur $15

    Heimsóknir á söfn $5

    Chile

    Eftirfarandi texta um Chile fundum við á heimasíðu Lonely Planet og leyfum ykkur að æfa ykkur í enskunni um leið. (http://www.lonelyplanet.com/dest/sam/chile.htm#triv1). Gangi ykkur vel.

    Úr Lonely Planet:

    Jafnvel þó enginn segi nei við rölti eftir strætum borganna er aðalástæða þess að ferðamenn laðast að þessari landrönd sem Chile er hin stórkostlega Kyrrahafsströnd, Andesfjöllin og framboð á alls kyns ævintýraferðum. Hin sérstaka menning Chilebúa hefur lifað af ofbeldi og yfirgang sögunnar og er enn á uppleið, þökk sé fólkinu sem er annálað fyrir hlýju, glaðleika og aðlögunarhæfni. Þrátt fyrir að vera eitt „evrópskasta" land Suður - Ameríku má finna ýmsar fornar hefðir í hlíðum Andesfjallanna með sumar af merkustu þjóðgörðum álfunnar draga að göngufólk og náttúruunnendur.

     

    Úr örbylgjunni:

    Nafn landsins: Lýðveldið Chile (Republic of Chile)

    Stærð: 750.000 km2

    Íbúafjöldi: 14.025.000 manns. (1,7% vöxtur á ári)

    Höfuðborg: Santíagó(íbúafjöldi: 5 milljónir)

    Fólkið: 90% mestizo, 5% indíánar, 5% evrópskir innflytjendur

    Tungumál: Spænska og fjöldi innlendra mállýska þ.m.t. Aymara, Mapuche og Rapa Nui

    Trúarbrögð: Yfir 90% rómversk-kaþólsk, 5% mótmælendur

    Stjórnarfar: Kristilegt lýðræði.

    Forseti: Eduardo Frei

    Sjá nánar á heimasíðu The Lonely Planethttp://www.lonelyplanet.com/dest/sam/chile.htm#triv1 upplýsingar um Chile.

    Samræður Chilebúa

    Eftirfarandi er beint upp úr skeyti sem við fengum frá vinum okkar í Chile

    GREETINGS

    • When a man and woman introduce each introduce each other, or between two women, the greeting is a kiss on the cheek.
    • When two men greet, they shake hands.

    IN A RESTAURANT

    • In most restaurant, people sit at a table , and wait for a waiter.
    • When you finish eating, the waiter brings the bill. Sometimes you need to hell him/her to do it.
    • Make a light sign to call the waiter. By no means shout or whistle .
    • Never use sticks to clean your teeth. It is considered rude.
    • The bill does not include the tip. A tip is about 10 % of the bill .
    • In general, chilean people are not noisy in restaurant.

    A NORMAL DAY

    • Chilean people start the day taking a shower, have breakfast, and then begin activities.
    • Chilean people are usually not punctual.
    • It is usual to visit people, even if you haven`t phoned before
    • When taking a bus, get on get on the front door, and get off the back door . The bus ticket is paid to the bus driver.
    • You may not walk in the streets without wearing a t-shirt. Even if the day is very hot.
    • Specially the first day , drink only bottled mineral water.

    Some pieces of advice

    • Do not buy icecream in the street
    • Keep your money carefully, don`t show it.
    • Carry lttle money with you in the street.
    • Ask a host scout to go shopping with you.
    • If you get lost, ask for help to a policeman or police woman (carabineros) Their uniform is green.
    • Do not show your camerasin the street.
    • When taking a taxi, ask previouly for the fare. Check that the taxi driver connects the taximeter at the moment you get in the car. The amount to be paid is shown on a sceen. Tips to taxi drivers are not used here.
    • Always carry your scout ID and passport.

    Ask your host troop to tell you the convenient places to buy handycrafts.


    Auglýsing

    Uppfært: 12. desember, 1998.
    © 1998 - Netnefnd BÍS - Guðmundur Jónsson
    Afritun án heimildar er leyfð ef Skátavefsins er getið með endurbirtingu efnis.
    Reproduction of material without permission authorized, giving credit to "www.scout.is".