Skátavefurinn - www.scout.is
Dagskrá mótsins
Handbók Jamboreefara (12)

Venjulegur dagur á World Jamboree (síðan eru allir óvenjulegu dagarnir!)

Við megum búast við því að fara yfirleitt á fætur á bilinu 05:30 til 06:30.

05:30 til 06:30 Ræs. Tíminn fer eftir því í hvaða verkefnum við erum þann daginn.

Til 08:00 Snyrting, morgunmatur, morgunleikfimi, „vangaveltur dagsins" o.s.frv.

08:15 til 08:30 Fánaathöfn á torginu.

08:30 til 10:30 Á þessu bili hefjast verkefni dagsins og standa til kl. 17:00 með matarhléi sem er á misjöfnum tímum eftir verkefnum oftast úti á dagskrársvæðunum.

17:00 til 18:00 Sturta, matarundirbúningur.

18:30 til 19:30 Torgráðsfundur (fyrir sveitarforingja)

18:00 til 21:00 Kvölddagskrá (kvöldmatur, flokksfundir, kvöldvökur og allt sem okkur gæti dottið í hug að gera).

21:00 til 23:30 Frjáls tími.

23:30 Kyrrð.

 

Eins og gefur að skilja er dagskrá mótsins ákaflega fjölbreytileg og er henni ætlað að uppfylla óskir og væntingar allra þátttakenda. Of langt mál er að telja upp alla dagskrárliði sem í boði verða en svona rétt til glöggvunar er rétt að minnast hér á því hvernig dagskráin er skipulögð í grófum dráttum. Kerfið er byggt upp á flokkakerfinu þannig að flokkarnir verða yfirleitt saman í verkefnunum nema í hækinu þar sem sveitin fer öll saman.

Dagskráin skiptist í fjóra hluta

  • Tjaldbúðalíf
  • Kjarna
  • Frístundaverkefni
  • Stórviðburði

Tjaldbúðalíf

Þarna er um að ræða alls kyns hluti sem tilheyra tjaldbúðalífi svo sem morgunverk, matseld o.s.frv. en einnig ýmsa dagskráratburði bæði á vegum mótsins og einhvað sem þátttakendur munu sjálfir hrinda af stokkunum, s.s. skora á aðra þjóð í einhverjum íþróttum, fara einhvert í heimsókn, halda kvöldvökur eða borða hádegismat með annarri þjóð o.s.frv. Þá munu flokkarnir þurfa að velja sér dagskrá með tveggja daga fyrir vara t.d. þegar þeir fara í hikeið verður um nokkrar leiðir að ræða sem flokkarnir forgangsraða hvaða leið þeir vilja helst o.s.frv. Sérstaklega má nefna "Friðarmerkið" sem verður merki sem þátttakendur munu geta unnið sér inn í frítíma sínum.

Á gamlársdag munum við einnig þurfa að klæðast einhverju sem minnir á Ísland og útbúa eitthvað gott, íslenskt til að gefa hinum á torginu okkar. Þarna munu koma saman alls kyns þjóðerni og verða örugglega undarlegustu hlutir á boðstólnum.

Kjarni

Þarna er um að ræða aðalverkefni mótsins sem skiptast í fimm aðalatriði:

Global Development Village (Alheimsþróunarþorp)

- Tveir dagar (2x2 klst á dag)

  • Þarna er um að ræða ótölulegan fjölda smiðja um allt milli himins og jarðar og verður þeim skipt í fjögur megin svið: listir, tækni og vísindi, umhverfismál og friðarmál.
  • Að auki verða þarna fjölmargir aðilar og stofnanir að kynna sig og það sem þær standa fyrir. Á síðasta World Jamboree í Hollandi voru hjálparsveitir skáta kynntar þarna.
  • Þarna verðum við í tvo heila daga þar sem við eigum að skrá okkur fyrirfram á mótinu í verkefni. Miðað er við hálfan dag á hverju sviði í einni tveggja tíma smiðju.

Tournament (Leikar)

- Einn dagur (2x2 klst.)

  • Þarna er um að ræða ýmis konar leika. Verða tvö svið sem allir taka:
    • Vatnasvig (Þátttakendur hafa eina klukkustund til að fara ákveðna leið á fleka og leysa verkefni á leiðinni) og
    • Suður-amerískir leikar (Klukkutímaverkefni þar sem þátttakendur læra fjóra mismunandi suður-ameríska leiki).

  • Auk þess verða fjögur valsvið:
    • Járnflokkurinn (lausn erfiðra verkefna),
    • járnvagninn(flokkurinn fær alls kyns hluti og á að búa sér til farartæki úr þeim),
    • trönubyggingar og loks ýmis
    • suður-amerísk landbúnaðarstörf, þ.e. að kynnast því hvernig sé að lifa í chilesku dreifbýli.

The Earth which Provides for us (Hin gjafmilda jörð)

- Einn dagur

  • Farið verður út fyrir mótssvæðið með rútu (líklega ca. 100 rútur á dag með 4.000 skátum!) og ýmis náttúrusvæði heimsótt sem gefa af sér t.d. þá ávexti sem neytt er á mótinu, koparnámur í nágrenninu o.s.frv.
  • Seinnipartinn er síðan grill og hefðbundnar veislur með innfæddum í chileskum þorpum.

A Day for Serving the Community (Þjónustudagur)

- Einn dagur

  • Farið verður út fyrir mótssvæðið í þorp í nágrenni mótssvæðisins og unnin þar einhver verk sem þarf að vinna þorpinu til heilla.
  • Í hádeginu bjóða íbúar þorpsins síðan skátunum inn á heimili sín í hádegismat.
  • Seinni partinn er svo haldið aftur á mótssvæðið.

Sólarhringshike

- Yfir nótt

  • Þarna mun sveitin fara saman. Lagt er af stað um kaffileytið og gengið í 2 til 3 klukkustundir auk þess sem áð er á tveimur stöðum og verkefni leyst sem viðkoma útilífi.
  • Síðan er eldað þar sem við höfum nætursetu einhversstaðar uppi á fjalli eða inni í skógi, sungið og trallað þangað til kyrrð er klukkan 23 því ræs er klukkan FIMM um morgunninn og lagt af stað klukkan hálf sex í 2 til 3 klukkustunda göngu aftur til tjaldbúðarinnar.

Samvinnuverkefni milli þjóða (Twinning Projects)

- Yfir nótt

Stuðlum að friði saman - áfram

Hvatt verður til þess að þátttakendur komi fótunum undir eitthvað verkefni eða atburð sem mun eiga sér stað á tveimur stöðum í heiminum á sama tíma eða vera á einhvern hátt sameiginlegt verkefni skáta frá fleiri en einu landi eftir að þátttakendur eru komnir aftur til síns heima. Í gangi verður sérstök keppni - Twinning Project Competition - þar sem í boði verður 250 dollara styrkur (u.þ.b. 20.000 krónur) til aðstoðar við framkvæmd verkefnisins.

Skráning á svona verkefnum fer fram hjá torgstjórum og verður komið fyrir "Twinning project" fána á þriggja metra stöng við tjaldbúðir þeirra sveita sem skráð hafa verkefni sem leysa á þegar heim er komið.

Frístundaverkefni

Ýmiskonar frístundaverkefni verða í boði (hvenær svo sem frístundirnar verða í boði!) Má þar nefna:

  • Jamboree Peace Badge (Friðarmerki mótsins)

  • Um er að ræða merki sem hægt er að vinna sér inn með því að uppfylla ákveðin skilyrði sem felast í því að kynnast öðrum þjóðum og að láta aðrar þjóðir kynnast sér t.d. með því að skipuleggja eitthvað skemmtilegt í tjaldbúðinni fyrir alla að taka þátt í.

  • Gönguferðir
    • Markmiðið að gefa þátttakendum tækifæri til að fá sér göngutúr um nágrennið. Mótssvæðið er staðsett við rætur Andesfjalla þannig að af nógu er að taka hvað varðar fagra náttúru og umhverfi.

  • Walk-in Activities (Kíkja-við-verkefni)
    • Hér og þar og alls staðar verða alls konar dagskrártilboð í gangi sem fólk mun geta komið við í þegar það er ekki fast í einhverju öðru.

  • Entertainment (Skemmtanir)
    • Alls kyns fjöllistaskátar (við og fleiri!) verður á rölti um svæðið og verður gaman að sjá hvað því dettur í hug að framkvæma.

  • World Jamboree Frequency (Jamboree-útvarp og Radíóskátun)
    • Fólk mun geta rölt við og komist í loftið með kveðjur o.þ.h.
    • Einnig verður hægt að komast í nánari snertingu við hvað verður í gangi.

  • Internet
    • Þátttakendur munu hafa aðgang að 80 nettengdum tölvum þar sem þeir geta sent póst og fleira.
    • Mótsblaðið mun einnig koma út á netinu daglega.

  • Sýning á skátamerkjum.
  • Sýning á skátafrímerkjum.

Stórir viðburðir

Um er að ræða fjóra meginviðburði:

  • Opnunarathöfnina.
    • Fer fram að kvöldi 27. des. frá 20:30 til 22:00 á aðalleikvangnum sem er u.þ.b. 35 metra breiður og 600 metra langur!

  • Áramótagleðina: Gamlársdag - 31. des.
    • Sveitirnar skipuleggja áramótakvöldverð frá klukkan 18:00 til 22:00
    • 22:00 til 00:00 fara allir á aðalleikvanginn þar sem ýmis skemmtiatriði verða í gangi til að kynda undir stemninguna fyrir áramótin.
    • Á miðnætti verða á sama stað við upphaf síðasta árs ársþúsundsins meira en 25.000 manns frá yfir 150 löndum í fimm heimsálfum að upplifa og drekka í sig einstaka minningu í anda skátahreyfingarinnar, stærstu ungmennahreyfingu heims! Þvílíkt partý!!!
    • Kl. 00:15 hefst dansleikur sem standa mun til 01:15 þegar ballið mun halda áfram eftir strætum og torgum mótssvæðisins áleiðis niður í tjaldbúðina. - Kyrrð.

  • Rally for Peace - Nýársdagur.
    • Friðarsamkoma með þátttöku allra þátttakenda.

  • Lokaathöfnina.
    • Að kvöldi 5. janúar. Síðasti stóri viðburðurinn þar sem tákn mótsins verður afhent Tælendingum sem síðan munu halda 20. heimsmót skáta - World Jamboree - árið 2003.


Auglýsing

Uppfært: 12. desember, 1998.
© 1998 - Netnefnd BÍS - Guðmundur Jónsson
Afritun án heimildar er leyfð ef Skátavefsins er getið með endurbirtingu efnis.
Reproduction of material without permission authorized, giving credit to "www.scout.is".