Skátavefurinn - www.scout.is
Flokksfundir - verkefni valin
Handbók Jamboreefara (11)

Flokksfundir

Flokkarnir munu halda flokksfundi einhvern tímann um kvöldmatarleytið hvern dag. Þeir fundir hafa tvö meginmarkmið:

  • Þar sem þeir munu koma saman og meta daginn, bæði hvað varðar flokkinn og hvað varðar einstaklinganna innan hans, með tilliti til skátaheitisins og skátalaganna og velta fyrir sér næsta degi.
  • Velja verkefni sem flokkurinn ætlar að taka þátt í næstu daga.

Verkefni næstu daga valin

Á flokksfundunum þurfa flokkarnir að forgangsraða hvaða dagskrárliði þeim langar að taka þátt í þá daga sem þeir taka þátt í Kjörnunum fimm (sjá dagskrá mótsins).

Heimsþróunarþorp (Global Development Village)

GDV er undantekning af því leyti að í því má flokkurinn skipta sér upp þannig að í raun er um að ræða að hver einstaklingur greiðir atkvæði fyrir sig persónulega á flokksfundinum. Flokkurinn ætti þó að reyna að gæta þess að reyna að dreifa sér á sem flestar smiðjur þannig að þátttakendur geti síðan deilt því sem þeir komust að raun um með hinum í flokknum. Með því að flokkurinn taki þátt í mörgum mismunandi smiðjum fá því allir smá skerf af mörgum smiðjum þegar við setjumst niður á flokksfundinum um kvöldið.

Allir mótsgestir munu sunnudaginn 27. desember taka ákvörðun um það í hvaða smiðjur þeir munu fara. Um er að ræða fjögur þemasvæði með 50 smiðjum hvert - samtals 200 smiðjur. Hver einstaklingur fær að taka þátt í einni smiðju á hverju þemasvæði. Hann þarf hins vegar að velja 4 smiðjur í hverjum hóp (samtals 16 smiðjur, þ.e. fjórar smiðjur á fjórum svæðum) sem hann langar að taka þátt í. Dagskrárstjórnin mun svo reyna að sjá til þess að hann fái eina af þeim sem hann valdi. Æskilegt er að flokkurinn dreifi sér á smiðjurnar þar sem þá er hægt að fá um 30 nýjar upplifanir inn í flokkinn sem svo er hægt að ræða á flokksfundinum um kvöldið.

Leikarnir (Tournament)

Leikarnir bjóða upp á hálfan dag í vatnaíþróttum og hálfan dag í einu af fjórum eftirtöldu dagskrárliðum:

  • Járnflokkurinn (lausn erfiðra verkefna),
  • járnvagninn(flokkurinn fær alls kyns hluti og á að búa sér til farartæki úr þeim),
  • trönubyggingar og loks ýmis
  • suður-amerísk landbúnaðarstörf, þ.e. að kynnast því hvernig sé að lifa í chilesku dreifbýli.

Flokkurinn þarf því, nú sem flokkur, að velja tvo af fjórum möguleikum og mun dagskrárstjórn reyna að uppfylla annan.

Valið á sér stað á flokksfundi tveimur dögum áður en flokkurinn tekur þátt í leikunum og mun flokkurinn fá í hendur nánari upplýsingar til að auðvelda sér valið.

Hin gjafmilda jörð (The Earth which Provides for Us)

Um er að ræða heimsókn á einn af 100 bóndabæjum, námum eða verksmiðjum í 6. héraði Chile (nágrannahéraði mótsins) ásamt veislu í þorpunum á eftir. Þessum heimsóknum hefur verið skipt upp í 5 flokka.

Flokkurinn þarf því, nú sem flokkur, að velja tvo af fimm möguleikum og mun dagskrárstjórn reyna að uppfylla annan.

Valið á sér stað á flokksfundi tveimur dögum áður en flokkurinn tekur þátt í leikunum og mun flokkurinn fá í hendur nánari upplýsingar til að auðvelda sér valið.

Þjónustudagur (A Day for Serving in the Community)

Um er að ræða aðstoð við uppbyggingu og vinnu í 20 bæjum og þorpum í kringum mótssvæðið auk þess sem íbúar bæjanna munu bjóða okkur inn til sín í hádegismat.

Flokkurinn þarf því, nú sem flokkur, að velja þrjú af tuttugu mögulegum þorpum og verkefnum og mun dagskrárstjórn reyna að sjá til þess að hann komist í eitt af þessum þremur.

Valið á sér stað á flokksfundi tveimur dögum áður en flokkurinn tekur þátt í leikunum og mun flokkurinn fá í hendur nánari upplýsingar til að auðvelda sér valið.

Sólarhringshike

Boðið verður upp á 20 hikeleiðir og mun sveitin fara sem einn hópur í gönguferðina og því er það í þessu tilfelli sveitin sem velur leiðina saman.

Sveitin þarf því, nú sem sveit, að velja þrjár af tuttugu mögulegum leiðum og mun dagskrárstjórn reyna að sjá til þess að hún komist eina af þessum þremur.

Valið á sér stað tveimur dögum áður en sveitin leggur af stað og mun hún fá í hendur nánari upplýsingar til að auðvelda sér valið.

Niðurstöðum valsins er í öllum tilfellum skilað á sérstökum formum til torgstjórnar og kvöldið áður en verkefnið á sér stað munu sveitirnar fá að vita hvað af því sem þær völdu varð fyrir valinu.


Auglýsing

Uppfært: 12. desember, 1998.
© 1998 - Netnefnd BÍS - Guðmundur Jónsson
Afritun án heimildar er leyfð ef Skátavefsins er getið með endurbirtingu efnis.
Reproduction of material without permission authorized, giving credit to "www.scout.is".