Skátavefurinn - www.scout.is
Mótssvæðið
Handbók Jamboreefara (10)

Mótssvæðið skiptist í stórum dráttum í aðalþjónustusvæði, tjaldbúðasvæði og dagskrársvæði. Eins og sjá má á litlu skýringarmyndinni og skýringunum hér hægra megin

Aðalþjónustusvæðið er miðhringurinn sem skiptist í mótsstjórnar og fararstjórnabúðir (fjólublátt), matarvinnslusvæði (grænt), heimsþróunarþorpið (Global Development Village) (blátt) og aðalleikvanginn í miðjunni (bleikur). Stærðina má velta fyrir sér að hann er a.m.k. nógu stór til að taka á móti 30.000 skátum og má út frá því reikna hinar vegalengdirnar!

Tjaldbúðirnar saman standa af þremur grænum hálfhringjum með appelsínu gulum hálfhringjum í miðjunni. Hver hálfhringur kallast „Þorp". Í hverju þorpi eru átta „Torg" (sjá grænu geirana). Á hverju torgi er búist við u.þ.b. 1.000 skátum og þ.a.l. 8.000 skátum í hverju þorpi. Þá er rauðasvæðið tjaldbúðir vinnubúðanna þar sem þau 8.500 sem hafa verið valin starfsmenn mótsins munu gista.

Svæði til bænahalda hefur verið komið fyrir uppi í hlíðinni ofan við svæðið (gult). Leikarnir (Tournament) munu fara fram efst í hægra horninu við vatnið (brúnt svæði).

Neðst í hægra horninu (grátt svæði) er svo gestasvæðið þar sem Chilebúar munu geta komið með fjölskylduna. Þeir munu ekki fá aðgang að mótssvæðinu en geta gengið hring í fjallinu hægra megin á myndinni og fengið sér síðan grill og sund á gestasvæðinu gráa.

Augljóst er að um miklar vegalengdir er að ræða og því nauðsynlegt að leggja mjög snemma af stað til að ná á réttum tíma í dagskrárliði.

Staðsetning okkar á mótssvæðinu

Nú höfum við fengið vitneskju um að við verðum í þorpi(e. Village, sp. Aldea) C sem heitir „Tiahuanaco", torgi (Subcamp) sem heitir „Mapuches" og á tjaldstæði (site) númer 21.

Við vitum ekki hvar það er á myndinni en höfum látið okkur detta það í hug að þorp C sé þorpið hægra megin við þjónustusvæðið, þ.e. milli þjónustusvæðisins og leikasvæðisins. Þetta eru þó aðeins getgátur og við seljum þær ekki dýrari en við keyptum þær!

Staðsetning fararstjórnar

Mótsdagana mun fararstjórn verða staðsett í fararstjórnabúðunum á þjónustusvæðinu. Það svæði er allnokkru fjarri búðum almennra skáta. Hins vegar munu sveitarforingjar dvelja með hópnum allan tímann. Á meðan dvalist er í Santíago eftir mótið mun allir þátttakendur, fararstjórn og sveitarforingjar halda hópinn allan tímann.

Tengsl fararstjórnar við þátttakendur meðan á móti stendur

Farastjórn mun vera með fasta viðverutíma á hverjum degi á ákveðnum stað á meðan á mótinu stendur og því munu þátttakendur á hverjum degi hafa tækifæri á því að ná tali af farastjórn. Jafnframt mun farastjórn koma í búðir íslensku skátanna daglega. Fararstjórn mun halda reglulega fundi með sveitarforingjum. Utan mótsins mun allur hópurinn halda saman.

Við komu á torgið fáum við:

  • Mótsmerki til að sauma á skátabúninginn.
  • Mótsklút.
  • Nafnspjöld með persónulegum upplýsingum.
  • Mótsbók þátttakenda (Foringjar fá einnig „Mótsbók foringja").
  • Flokkar fá afhent debetkort sitt til að versla fyrir í verslun mótsins og tjaldbúðaefni.

Tekið verður á móti starfsfólki mótsins (Siggi Már) í starfsmannastjórn (Human Resources Office) hvar það fær ofangreind gögn og vinnulýsingu.

Klútar og nafnspjöld verða í eftirfarandi litum:

  • Skátar: Grænt.
  • Sveitarforingjar: Gult.
  • Vinnubúðir: Appelsínugult.
  • Fararstjórn og mótsstjórn: Blátt.

Kynjaskipting

Þeir sem eru saman í tjaldi á mótinu verða af sama kyni. Að öðru leyti mun ekki vera um neina kynjaskiptingu að ræða aðra en þá sem almennt tíðkast, s.s. um snyrtiherbergi o.s.frv. Athygli þátttakenda er vakin á því að það sama gildir ekki hjá öllum öðrum þjóðum sem taka þátt í mótinu og að okkur ber að virða þær reglur sem gilda um samskipti kynjanna hjá þeim þegar svo ber undir.

Skipting í tjöld

Tjald

Nafn

Tjald

Nafn

1

Bragi

Sigfús

5

Berþóra Ólöf

Elín

Sigrún

2

Ingibjörg

Sigurður Viktor

6

Einar Beinteinn

Guðbjörn

Kristinn

3

Helga Rós

Hjördís María

Ingibjörg Rós

7

Guðjón Einar

Vilbrandur

Þórgnýr

4

Hulda

Margrét

Sólveig Rós

   

Nágrannar okkar á mótinu

Okkur hafa borist þær fréttir að þeir sem verði sitt hvoru megin við okkur á torginu verði frá Fillipseyjum annars vegar og Seychelles-eyjum hins vegar. Bæði löndin eru framandi okkur og eins og Henrike vinur okkar Íslendinganna í skráningunni úti sagði: "Þið eigið nú kannski ekki svo mikið sameiginlegt - en þið búið þó alla vega öll á eyjum!". Þetta er málið. Eftir allt saman eigum við ýmislegt sameiginlegt. Þetta verða örugglega góðir vinir okkar og því nauðsynlegt að kynnast þeim aðeins nánar.

Fillipseyjar:

Fillipseyingar hafa mjög ríka skátahefð og er m.a. forseti Fillipseyja jafnframt skátahöfðingi. Þátttaka í skátastarfi er því ein sú allra mesta í heiminum og lætur nærri að einn af hverjum þremur strákum (Boy Scouts of Phillipines) sé þátttakandi í skátastarfi. Bandalagið er því það þriðja fjölmennasta skátabandalag í heimi með rúmlega þrjár milljónir skáta (Skátabandalag Indónesíu er fjölmennast og síðan kemur bandaríska bandalagið (Boy Scouts of America) í öðru sæti).

Núverandi formaður heimsstjórnar skáta (World Committee) er Francisco Roman fyrrum framkvæmdastjóri fillipíska bandalagsins.

Af Lonely Planet ferðavefnum:

Þær 7000 eyjar sem mynda Fillipseyjar eru hinar gleymdu eyjar Suð-austur Asíu. Þær eru utan alfaraleiðar og hafa aldrei dregið að mikinn fjölda ferðamanna. Það er engin spurning að landið hefur tapað á þessu efnahagslega. Hins vegar eru Fillipseyjar tiltölulega stöðugt land og öruggt. Landið er kynnt sem staður þar sem "Asía brosir" og hvar innfæddir eru vinalegt og hjálpfúst fólk. Auk þess eru samgöngu ódýrar, maturinn góður, nóg af gistirými og einnig tala margir ensku.

Úr örbylgjunni:

Nafn landsins: Lýðveldið Fillippseyjar (Republic of the Philippines)

Stærð: 299.000 km2

Íbúafjöldi: 68 milljónir (fjölgar um 2.5% á ári)

Höfuðborg: Manila (íbúafjöldi: 10 milljónir)

Fólkið: Aðallega fólk ættað frá Malasíu, kínverskur og islamskur minnihluti og einhver fjöldi mestizos (spænsk- og amerísk-ættuðum Fillippseyingum).

Tungumál: Fillipseyska (Pilipino) og enska auk þjóðflokkatungumála sem töluð eru nokkuð víða, - auk spænsku.

Trúarbrögð: 82% rómversk kaþólsk, 9% mótmælendur (Protestant), 5% islam, 3% Búddahtrúar.

Stjórnarfar: Lýðveldi.

Forseti: Joseph Estrada (jafnframt skátahöfðingi).

Seychelles-eyjar:

Það er skemmst frá að segja en við vitum bara ekki neitt um skátastarf í þessu landi, og vissum raunar ekki að það væri til fyrr en alveg núna nýlega!

Lonely Planet vefurinn segir hins vegar:

Seychelles-eyjar eru með alfallegustu eyjum í Indlandshafi sem gera þær að einhverjum þeim fallegustu í heimi. Þetta er staðurinn sem þú sérð í hyllingum þegar þú situr inni við borðið og dreymir um að flýja til hitabeltiseyju langt langt í burtu. Eini munurinn er sá að þetta er eiginlega ennþá flottara í raunveruleikanum! Auðvitað er paradís ekki ókeypis og lítið um ódýra gistingu og að skella sér í köfun meðal fiskanna er hreint ekki frítt.

Þrátt fyrir það að aðalaðdráttarafl eyjanna séu hvítu strendurnar, pálmatrén og hlýr sjórinn auk köfunar er einnig fullt af flottum gönguleiðum, margt mjög fágæddra dýrategunda, fugla og planttegunda og hinn skrítni „Top-notch" klettur til að klifra.

Úr örbylgjunni:

Nafn landsins: Lýðveldið Seychelless (Republic of Seychelles)

Stærð: 455 km2

Íbúafjöldi: 73 þúsund manns.

Höfuðborg: Victoria (íbúafjöldi: 27 þús.)

Fólkið: Seychellískt (af afrískum, indverskum og evrópskum uppruna)

Tungumál: Enska, franska og franskt Kreólamál

Trúarbrögð: Hindúismi (51%), kristni (30%), Islam (17%)

Stjórnarfar: Alþýðulýðveldi

Forseti: France-Albert René

Skiptimarkaður

Það er rétt að taka það fram að einn af stærstu þáttunum á móti sem þesu er að sjálfsögðu að afla vina og skapa tengsl skáta í milli. Að þessu eru margar leiðir færar en ein sú vinsælasta er að skiptast á eigum hvors annars. Það sem hér er um að ræða eru fyrst og fremst smáhlutir eins og skátamerki, nælur og þess háttar. Það er því um að gera að vera viðbúin þessu og hafa með sér eitthvað af smádóti sem er einkennandi fyrir Ísland, merkt Íslandi á einhvern hátt eða íslenskum skátum.

Norðurlandavarðeldur

Á mótinu verða að sjálfsögðu varðeldar og kvöldvökur af ýmsum stærðargráðum. Eitt sem sker sig aðeins út úr og er kannski hvað mest spennandi er að Norðurlöndin munu hittast eina kvöldstund og taka lagið saman. Þetta verður án efa ánægjuleg uppákoma enda margt líkt með þessum þjóðum.

Mótssöngurinn

Sjá kafla 13 um mótssönginn.

Matur á mótinu

Hver flokkur fær debetkort með ákveðinni upphæð í Chileskum peso. Þetta kort verður hægt að nota í stórmarkaði mótsins til að kaupa mat yfir mótið. Í hvert skipti sem verslað er fær viðkomandi kvittun þar sem tilgreint er verð vörunnar og hvað mikið er eftir á kortinu. Aðeins verður hægt að kaupa almenna matvöru sem merkt verður sérstaklega með þessu korti. Aðra vöru verður hægt að kaupa með peningum eða kreditkortum.

Hádegismatur í dagskrárliðunum á þjónustudeginum, „Hin gjafmilda jörð", leikunum verður útdeilt á dagskrársvæðinu. Þá munum við fá matarpakka með okkur í hikeið.

Samskipti

Á mótssvæðinu eru 200 kortasímar auk síma og faxtækja sem staðsett verða á hverju torgi fyrir sig. Þá verða um 80 tölvur þar sem hægt verður að fara á netið og taka á móti tölvupóst.

Útvarpsstöð

Útvarpsstöð mótsins kallast mun senda út á 106,5 og munu mótsgestir geta komið að útsendingum sæki þeir.

Andesfjallaverkefnið - Operation Los Andes

Í gangi er verkefni sem kallast Andesfjallaverkefnið. Það snýst um að ríkari þjóðir greiða niður þátttöku fátækari þjóða heims í mótinu. Á mörgum stöðum þar sem skátastarf er til staðar eiga skátarnir enga möguleika á að fjármagna ferð sína á World Jamboree. Þá hleypur samtakamáttur skátahreyfingarinnar undir bagga og reynir að styrkja þá til fararinnar. Einnig fer ágóði af ýmissri sölu o.þ.h. á mótinu til styrktar verkefninu.

Rusl og endurvinnsla til styrktar Andesfjallaverkefninu

Mótsstjórn skorar á þátttakendur mótsins, skáta alls staðar að úr heiminum að taka höndum saman og vera á varðbergi fyrir því að mótssvæðið sé snyrtilegt og að skerast í leikinn og týna upp rusl sem óvart hefur lent á götum mótsins og henda því í næstu ruslafötu.

Ruslafötur verða staðsettar á ýmsum stöðum á mótssvæðinu, þ.m.t. sérstakar ruslafötur fyrir niðursuðudósir, pappír, pappa og gler- og plastflöskur. Þetta verður endurunnið og selt til styrktar Andesfjallaverkefninu.


Auglýsing

Uppfært: 12. desember, 1998.
© 1998 - Netnefnd BÍS - Guðmundur Jónsson
Afritun án heimildar er leyfð ef Skátavefsins er getið með endurbirtingu efnis.
Reproduction of material without permission authorized, giving credit to "www.scout.is".