Skátavefurinn - www.scout.is
Umhverfissáttmáli þátttakenda
- Environmental Decalogue -

Handbók Jamboreefara (9)

Við, þátttakendur 19. heimsmóts skáta - World Jamboree:

1. Vitandi það að mótið er haldið úti í náttúrunni, lofum að koma eins fram við náttúruna sem um okkar eigið heimili væri að ræða.

2. Einsetjum okkur að menga ekki landið enda sé það undirstaða verkefna okkar og alls lífs planta á svæðinu.

3. Vitum að vatn, sem er af skornum skammti, er lífsnauðsynleg náttúruauðlind sem þarf að nota af skynsemi.

4. Skiljum að villt náttúran umhverfis mótssvæðið er ómetanleg og einstök og lítum því á verndun hennar sem forgangsverkefni.

5. Erum meðvituð um hættuna af skógareldum í nágrenninu og tilkynnum því allt sem valdið getur skógareldum. Við kveikjum ekki varðelda nema á þar til gerðum svæðum sem ákveðin eru af torgstjórn.

6. Virðum það fólk sem býr í nágrenni mótssvæðisins og erum meðvituð um að mótshaldið hefur áhrif á daglegt líf þeirra.

7. Gerum okkur grein fyrir mikilvægi skipulags við mótshaldið, mikilvægi merkinga á svæðinu og gerum viðvart um þá sem valda skemmdum á þeim.

8. Tökum á okkur þá ábyrgð að sjá til þess að umhverfi okkar sé hreint og snyrtilegt og laust við sorp.

9. Gerum okkur grein fyrir gildi fornleifa í sögu okkar og heimsins og tilkynnum því allar fornmynjar sem við hugsanlega kunnum að finna, hversu smáar sem þær kunna að vera.

10. Gerum okkur grein fyrir því að eina leiðin til að þessi sáttmáli standist er að við tökum okkur á í því að lifa og starfa í takt við hann og sjá til þess að aðrir geri það líka.


Auglýsing

Uppfært: 12. desember, 1998.
© 1998 - Netnefnd BÍS - Guðmundur Jónsson
Afritun án heimildar er leyfð ef Skátavefsins er getið með endurbirtingu efnis.
Reproduction of material without permission authorized, giving credit to "www.scout.is".