Reglur mótsins - Camp Regulations Handbók Jamboreefara (8)
Framkoma og hegðun
Heimsmót skáta - World Jamboree - það nítjánda í röðinni, er tækifæri fyrir bæði þátttakendur og foringja til að hitta annað fólk, eignast vini og skiptast á hugmyndum og upplifunum innan þess grundvallaramma sem lög og heit skátahreyfingarinnar skapa.
Á mótinu er ætlast til þess að þátttakendur, foringjar þeirra og starfsmenn mótsins komi fram og hagi sér í samræmi við reglur mótstjórnar. Einnig er ætlast til þess að þeir virði Umhverfissáttmála þann sem sjá má aftast í reglum mótsins í því skyni að tryggja að atburðurinn gangi vel og vandamálalaust fyrir sig.
Við höfum enga trú á öðru en að þetta muni verða raunin meðan á dvöl mótsgesta stendur að Picarquín.
Fari þátttakandi, foringi eða starfsmaður ekki að reglum þeim sem mótsstjórn hefur sett verður tekið á því máli í samráði við fararstjóra. Mótsstjórn eða einhver á hennar vegum mun þó hafa lokaorðið í því máli. Leiði þær ráðstafanir til einhvers kostnaðar mun viðkomandi einstaklingur vera látinn bera hann að fullu. Ekki verður orðið við neinum beiðnum varðandi niðurfellingu slíks kostnaðar né neins konar óskum um bætur þeim til handa verði einhver t.d. látinn taka pokann sinn.
Af ofangreindum ástæðum vildum við biðja þig að gjöra svo vel og veita eftirfarandi atriðum sérstaka athygli:
Útlit þátttakenda og hreinlæti
Þátttakendur skulu vera hreinir og snyrtilegir til fara allan mótstímann.
Samskipti kynjanna og tjáning hrifningar!
Hvert það athæfi sem inniheldur hvers konar árás á líkamlega, andlega eða siðferðislega líðan eða ógnar vellíðan annarra er stranglega bönnuð.
Mótið munu sækja fólk af báðum kynjum. Sú staðreynd kallar á viðurkenningu, samvinnu og gagnkvæma virðingu fólks í milli. Í þessu samhengi er ekki ætlast til að litið sé á mótið sem tækifæri til skyndikynna eða ástarsambanda. Ætlast er til þess að fólk sýni tillitssemi gagnvart öðrum þátttakendum mótsins og haldi mjög nánum samskiptum fyrir sig og utan alfarasvæða.
Munnsöfnuður
Tungumál er tæki í tjáskipta manna í milli og til að skapa jákvæð tengsl milli fólks. Mótsgestum er því bent á að gæta tungu sinnar meðan á mótinu stendur og koma fram af kurteisi.
Stundvísi
Mikil vinna hefur farið í að skipuleggja dagskrá mótsins til þess að allir geti tekið þátt í henni. Öll seinkunn hefur því mjög neikvæð áhrif, ekki einungis á þann atburð sem á að fara að hefjast heldur einnig þá sem á eftir koma. Stundvísi er því grundvallarþáttur í því að framkvæmd mótsins gangi vel. Á þetta sérstaklega við þá dagskrárliði þar sem fara þarf út af mótssvæðinu.
Hreinlæti og snyrtimennska
Mótssvæðið er heimili allra mótsgesta. Framlag hvers og eins hefur mikið að segja við að halda svæðinu hreinu til að okkur geti öllum liðið eins og heima hjá okkur auk þess sem að vera skref í þá átt að auka þau lífsgæði sem við skátar stefnum að í heiminum.
Áfengi og tóbak
Mótið er tækifæri fyrir þátttakendur til að lifa heilbrigðu lífi og er því neysla áfengra drykkja stranglega bönnuð með á mótinu stendur. Reykingar eru aðeins leyfðar í lausum tímum á þar til gerðum stöðum í "Llavería" (höfuðstöðvum mótsins - fararstjórabúðum) og í vinnubúðum mótsins.
Fíkniefni
Í Chile er neysla fíkniefna ólögleg. Verði einhver staðinn að verki við neyslu eða dreifingu fíkniefna verða viðkomandi yfirvöldi í Chile þegar kölluð til og viðkomandi rekinn af svæðinu.
Vopn
Öll meðferð hættulegra vopna og skotvopna er bönnuð á svæðinu. Brot á þessu varðar við chilesk lög og verður tekið á málum í samræmi við þau.
Viðskipti með vörur og fjárhættuspil
Öll sala er bönnuð á svæðinu nema með leyfi mótsstjórnar. Fjárhættuspil eru einnig bönnuð.
Tjón eða skemmdir
Þátttakendur verða gerðir persónulega ábyrgir gagnvart skemmdum sem þeir hugsanlega kunna að valda með ósæmilegri hegðun. Þjófnaður leiðir til umsvifalausrar brottvísunnar frá mótinu.
Farartæki
Að undanþegnu slökkviliði og sjúkrabílum í neyðartilvikum er öll umferð ökutækja bönnuð á mótssvæðinu. Þjónustubílar verða aðeins leyfðir að næturlagi.
Eldur
Aðeins má kveikja eld á þar til gerðum stöðum ákveðnum af torgstjórninni (Subcamp Teams). Á sveitar- og flokkasvæðum sem og í tjöldum má aðeins nota gas- og rafhlöðuljós.
Öryggisgæsla
Lögreglan í Chile mun bera ábyrgð á öryggi mótsins utanfrá. Innan mótssvæðisins verður það sérstakt löggæslulið á vegum mótsins sem mun sjá um öryggisgæslu á svæðinu. Sá hópur mun einnig sjá til að hvar og hvenær sem er að þessu reglum sé fylgt. Mótsgestir eru því beðnir um að sýna gott samstarf allan tímann. Mótslöggurnar munu verða auðþekkjanlegar.
Gestir
Þeir einu sem munu mega heimsækja mótssvæðið eru þeir sem sérstaklega hafa sótt um og fengið leyfi mótsstjórnar. Nærveru foreldra, skyldmenna og vina þátttakenda er ekki óskað.
Vera á mótssvæðinu
Einungis þeir sem þurfa að sinna brýnum erindum geta yfirgefið mótssvæðið og þarf leyfi mótsstjórnar til þess.
Skátabúningur
19. alheimsskátamótið - World Jamboree er formlegur atburður haldinn af Alheimssamtökum skáta (WOSM). Á tilteknum tímum og atburðum er því óskað eftir því að þátttakendur noti skátabúning,.
Einkenni
Allir mótsgestir munu fá afhent nafnspjald og mótsklút við komu á mótssvæðið. Þetta er persónulegar eigur viðkomandi þátttakanda og skulu þátttakendur bera þessi einkenni meðan á mótinu stendur.
Fjölmiðlun
Búist er við miklum fjölda blaðamanna á mótið. Mótsgestum er því bent á að taka þeim vel vilji þeir taka við ykkur viðtöl eða spyrja ykkur að einhverju leyti.
Bólusetningar
Gert er ráð fyrir að allir þátttakendur mótsins, almennir, foringjar og starfsfólk hafi fengið þær sprautur sem gefnar eru í æsku. Mótsstjórn hvetur okkur einnig til að hafa sprautað okkur fyrir lifrabólgu og það höfum við Íslendingarnir gert.
Lyfjameðferð
Hver sá sem neytir lyfja rétt fyrir mót og þarf að halda því áfram meðan á móti stendur þarf að taka með sér nægan skammt til að hann dugi út ferðina auk læknisvottorðs. Vottorðið skal vera á spænsku, ensku eða frönsku með nafni, heimilisfangi, símanúmeri og undirskrift læknis þess sem stjórnar meðferðinni. Þeir sem að ekki hafa slíkt læknisvottorð munu verða ætlaðir við góða heilsu.
 |  |  |
Uppfært: 12. desember, 1998.© 1998 - Netnefnd BÍS - Guðmundur Jónsson
Afritun án heimildar er leyfð ef Skátavefsins er getið með endurbirtingu efnis. Reproduction of material without permission authorized, giving credit to "www.scout.is". |
|---|
|