Skátavefurinn - www.scout.is
Annað varðandi undirbúning
Handbók Jamboreefara (7)

Sameiginlegur útbúnaður

Fararstjórn hefur keypt eða fengið á leigu mestallan þann útbúnað sem þarf til sameiginlegra nota á mótinu. Þar er átt við matargerðaráhöld, tjöld, efni í hlið, borð og bekki auk áhalda til smíða svo eitthvað sé nefnt.

Tungumál

Chilebúar tala spænsku sem fá okkar kunna. Þó mun Ingibjörg verða okkar stoð og stytta þegar út í spænskuna er komið. Margir Chilebúar geta þó eitthvað tjáð sig á ensku. Á mótinu fer allt fram á ensku og spænsku svo að það er nauðsynlegt fyrir þátttakendur að reyna að auka sem mest orðaforða sinn í ensku (eða spænsku), t.d. með því að lesa vasabrotsbækur og tala ensku hvenær sem færi gefst. Allir sem við komum til með að hitta og kynnast eru allir af vilja gerðir til að reyna að skilja okkur og við verðum að sýna sömu viðleitni á móti. Og munið að vera óhrædd við að reyna að gera ykkur skiljanleg.

Hegðun og hátterni

Það þarf að sjálfsögðu ekki að minna íslenska skáta á það að hegða sér vel og sýna kurteisi á meðan á dvölinni stendur. Við erum algjörlega ábyrg fyrir öllum skemmdum sem orðið gætu af okkar völdum meðan á dvöl okkar stendur og mun það einfaldlega bætast á reikninginn. Þó er okkur samt hollt að hafa það á bak við eyrað að við erum fulltrúar okkar lands og þjóðar á meðan við erum á erlendri grund. Það er mjög líklegt að við séum einu Íslendingarnir sem langflestir þeirra sem við hittum hafa og munu nokkurn tíma eiga samskipti við á lífsleiðinni. Því er það okkar framkoma sem mun stjórna þeirra áliti á Íslendingum og Íslandi. En það er líka þýðingarmikið að vera létt og hress og ávallt með bros á vör! Munið að skátalögin eru lög þessarar ferðar.

Nokkrar athyglisverðar heimasíður

Ýmsar upplýsingar um Chile má finna á vefsíðu Lonely Planet ferðabókanna: http://www.lonelyplanet.com/dest/sam/chile.htm#triv1.

Ýmsar skemmtilegar upplýsingar um Ísland má einnig finna t.d. á eftirtöldum vefsíðum sem og t.d. í "Passport to Iceland" sem er selt í hinum ýmsu ferðamannaverslunum:

Þátttakendur og aðstandendur þeirra eru hvattir til að heimsækja heimasíðu BÍS: www.scout.is þangað eru komnar myndir af okkur öllum og þangað munu berast fréttir meðan á ferðinni stendur.

Netfangið okkar í Chile: sivu@vhr.is.

Heimasíða mótsins sjálfs: http://gamaliel.jamboree99.cl/WJ99/

Aðrar áhugaverðar heimasíður

    Heimasíða slóvensku World Jamboreefaranna (sem verða með okkur í Santíagó): http://www2.arnes.si/~ljzts1/page1slo.htm

    Norska síðan: http://home.sol.no/~olarsen/wj99.htm

    (Hægt að sækja Jamboreesönginn á hljóðskrá.)

    Hollensk síða: http://www.scouting.nl/wj99/index-eng.html

    Finnska síðan: http://www.scout.fi/jamboree99/

    Amerískur hópur á leið á World Jamboree: http://scout.simplenet.com/Troop707/

Ferðaáætlun

Lokaútgáfa ferðaáætlunar er loks tilbúin eftir nokkrar smávægilegar breytingar. Hún lítur svona út:

Brottför er laugardaginn 26. desember 1998 - Annar í jólum

Viðburður Dagsetning Staðartími Staður

Mæting 26. desember 1998 06:30 Keflavíkurflugvöllur

Brottför 26. desember 1998 08:50 Keflavíkurflugvöllur

Lending 26. desember 1998 12:00 Heathrow - London - Bretland

Brottför 26. desember 1998 19:15 Heathrow - London - Bretland

Lending 26. desember 1998 22:30 Madrid - Spánn

Brottför 26. desember 1998 23:35 Madrid - Spánn

Lending 27. desember 1998 07:50 Santiago - Chile

Samtals tími: 29:20 með tímamismun (+4 klst.)

World Jamboree í Chile - 27 desember 1998 til 7. janúar 1999

Dvalist í íþróttahúsi í Santiago frá 7. - 11. janúar 1999.

Brottför 11. janúar 1999 10:40 Santiago - Chile

Lending 11. janúar 1999 13:30 Buenos Aires - Argentína

Brottför 11. janúar 1999 14:50 Buenos Aires - Argentína

Lending 11. janúar 1999 07:15 Madrid - Spánn

Brottför 12. janúar 1999 09:15 Madrid - Spánn

Lending 12. janúar 1999 10:30 Heathrow - London - England

Brottför 12. janúar 1999 13:00 Heathrow - London - England

Lending 12. janúar 1999 15:55 Keflavíkurflugvöllur.

Samtals tími: 25:15 með tímamismun (-4 klst.)

Við brottför

Þátttakendur munu hittast í brottfarasal Leifsstöðvar klukkan 6:30 að morgni annars í jólum, þ.e. 26. desember. Miðað er við að hver þátttakandi sjái sjálfur um að útvega sér far til Keflavíkurflugvallar.

Ferðafélagar

Í íslenska hópnum eru 19 skátar, þar af 14 af höfuðborgarsvæðinu og 5 af Suðurnesjum. Sum hver hafa lítið sem ekkert kynnst en önnur þekkjast mjög vel. Það er hins vegar allt í lagi því framundan er næstum mánaðarlangur samverutími er gefur okkur næg tækifæri til að kynnast hvert öðru og mynda vinatengsl því það er jú það sem skátastarf gengur meðal annars út á.

Við munum eiga okkar góðu stundir saman og við munum eiga saman erfiðar stundir. Í ferðalagi sem þessu er brýnt að við gerum okkur fyllilega grein fyrir því að við erum ekki ein á ferð og að tillitssemi við náungann og samferðarmann er boðorð númer eitt.

Við þurfum líka að gera okkur grein fyrir því að við verðum ekki ein um borð í flugvélunum á leiðinni út né heldur á leiðinni heim. Með okkur í flugvélunum verða örugglega stórir hópar skáta í sömu erindagjörðum og við sem og aðrir farþegar. Það er því kjörið tækifæri fyrir okkur að geta strax í upphafi ferðar okkar hafist handa við að afla okkur nýrra vina, vina sem við munum síðan starfa með á mótinu undir kjörorðinu Stuðlum saman að friði (Building Peace Together).

Um borð í flugvélinni

Eins og áður sagði verðum við hvorki ein um borð í flugvélinni á leið til Chile né heldur heim. Því er fyrsta boðorðið "tillitssemi við samferðarfólk okkar". Að auki eru það nokkur önnur atriði sem við verðum að hafa í huga sem geta skipt sköpum um að ferðalagið verði sem þægilegast og ánægjulegast. Við munum verða á ferðinni í samtals tæplega 30 klukkustundir. Við það bætast ferðir til Keflavíkur, dvöl á flugvellinum og sambærileg ferðalög í Chile. Jafnframt fljúgum við yfir 4 tímabelti. Þetta gerir það að verkum að ef við fylgjum ekki þeim leiðbeiningum sem við höfum í dag um flugið getum við átt það á hættu að verða fyrir óþægindum. Samnefnari fyrir þessi óþægindi er “Þotuveiki”.

Þotuveikin getur bæði haft andleg og líkamleg áhrif á okkur. Þar sem við komum til með að fljúga yfir 4 tímabelti, sem þýðir í raun að við „græðum" 4 klukkustundir í sólarhringinn, þá riðlast okkar venjulega líkamsstarfssemi. Við eigum á hættu að fá ekki nægan svefn, matmálstímar riðlast og langtímaseta um borð í flugvél hefur þreytandi áhrif á okkur, „við stirðnum upp".

Jafnframt ber að hafa í huga að við munum fljúga úr hitastigi sem er mun lægra en það sem tekur við að flugi loknu. Við það myndast mikil uppgufun úr líkamanum og hætta á hitaslagi eykst. En við þessu eru til góð ráð. Fyrst ber að nefna SVEFN. Mjög mikilvægt er að við verðum úthvíld áður en við leggjum upp í ferðalagið, jafnframt verðum við að reyna að sofa eins mikið og við getum um borð í flugvélinni. Ekkert dregur eins mikið úr spennu á svona ferðalagi og svefninn. Einnig þurfum við að NÆRAST nóg og passa upp á að láta hungrið ekki ná tökum á okkur. Við munum hafa góðan tíma við komuna til Chile til að ná upp reglulegri tíðni á matmálstímum. Síðast en ekki síst er það VÖKVINN. Til þess að vega upp á móti því vökvatapi sem fylgir löngu flugi og við munum óneitanlega verða fyrir er mjög brýnt að innbyrða mikinn vökva um borð í flugvélinni. Allir óáfengir drykkir er að öllum líkindum fríir um borð og um að gera að nýta sér það. Síðast en ekki síst er það hreyfingin. Það er einnig nauðsynlegt að gera léttar líkamsæfingar um borð. Hreyfa fætur, axlir og hendur og teygja vel úr sér öðru hvoru.

Afþreying

Það getur verið erfitt að sitja lengi kyrr og hafa ekkert fyrir stafni. Vonandi munum við geta horft á myndbönd um borð í flugvélunum en það er líka um að gera að hafa með sér eitthvað að lesa og jafnvel spil að grípa í. Sem sagt að hafa nóg að gera um borð.

Klæðnaður

Við munum, sem íslenskir skátar, vera í skátabúning á leiðinni. Þetta getur þó verið óþægilegur klæðnaður um borð í flugvélinni og bendum við því þátttakendum á þann möguleika að vera í stuttermabol undir skátaskyrtunni þannig að þeir geti farið úr skátaskyrtunni á meðan þeir eru um borð í flugvélum á milli Evrópu og Suður - Ameríku. Þeir sem kjósa að skipta um klæðnað um borð þurfa síðan að fara aftur í skátabúninginn áður en við lendum á hverjum stað því þegar við förum út úr vélinni (í flugstöðvum o.þ.h.) þá er skylda að vera í skátabúning. Einnig verðum við að sjálfsögðu í búning við komuna til Chile.

Skoðunarferðir í London, Madrid og Buenos Aires milli flugferða

Á leiðinni til Chile er möguleiki á að við reynum að kíkja eitthvað aðeins inn til London þar sem við munum þurfa að bíða á flugvellinum í sjö klukkustundir. Þetta er þó ekki ákveðið enda London það stór borg að sjö tímar eru fljótir að líða. Nauðsynlegt er auðvitað að vera örugglega á flugvellinum á réttum tíma - því enginn vill missa af vélinni! Of stutt stopp er í Madrid og Buenos Aires til að kíkja eitthvað út af flugvellinum og búumst við frekar við því að þurfa að flýta okkur til að ná á milli véla.


Auglýsing

Uppfært: 12. desember, 1998.
© 1998 - Netnefnd BÍS - Guðmundur Jónsson
Afritun án heimildar er leyfð ef Skátavefsins er getið með endurbirtingu efnis.
Reproduction of material without permission authorized, giving credit to "www.scout.is".