Skátavefurinn - www.scout.is
Samband á milli þátttakenda og aðstandenda meðan á ferð stendur
Handbók Jamboreefara (4)

Á mótssvæðinu eru sérstakir símaklefar fyrir skátana til að hafa samband við aðstandendur sína. Því miður hafa ekki fengist upplýsingar frá Chile um það hvað það kostar að hringja til Íslands. Samkvæmt upplýsingum frá Landssímanum kostar mínútulangt símtal til Chile að degi til kr. 155 og kr. 135 að kvöldi til. Líklegt er að það sé álíka dýrt að hringja til Íslands. Þar sem svo líklegt er að símtöl frá Chile heim til Íslands séu dýr munu fararstjórn og sveitarforingjar ekki hvetja þátttakendur sérstaklega til að hafa símasamband heim til aðstandenda sinna. Þess í stað munu þáttakendur verða hvatir til að senda póstkort og þeim boðið að skrifa rafrænan póst sem farastjórn mun svo senda á netfang BÍS eða annað sem beðið er um. Jafnframt er líklegt að þátttakendur munu hafa einhvern aðgang að internetinu og geta sent rafrænan póst til sinna nánustu sem hafa netfang.

Netpóstur

Foreldrar munu einnig geta sent hópnum póst meðan á mótinu stendur. Til stendur að nota netfangið hans Sigga Úlfars., sveitarforingja, þ.e. sivu@vhr.is.

Fréttir á Skátavefnum - www.scout.is

Stefnt er að því að senda reglulega fréttir af ferðinni á heimasíðu BÍS www.scout.is og munu þær birtast þar aðstandendum og áhugafólki til lesningar. Foreldrum er einnig bent á að fararstjórn mun reglulega hafa tölvusamband við skrifstofu BÍS og þar verður hægt að fá upplýsingar um gang mála í Chile.

Neyðartilfelli

Í neyðartilfellum geta foreldrar/forráðamenn haft samband við Júlíus Aðalsteinsson, á skrifstofu BÍS í síma 562-1390 eða farsíma 894-2042.

Mótsblaðið á Netinu

Mótsblaðið mun einnig birtast á heimasíðu mótsins þannig að aðstandendur munu geta fengið smjörþefinn af því hvað er að gerast á mótinu þar. Skátavefurinn verður með krækju á mótsblaðið hér á Chile-síðunni.


Auglýsing

Uppfært: 12. desember, 1998.
© 1998 - Netnefnd BÍS - Guðmundur Jónsson
Afritun án heimildar er leyfð ef Skátavefsins er getið með endurbirtingu efnis.
Reproduction of material without permission authorized, giving credit to "www.scout.is".