3. Heilbrigði og bólusetningar Handbók Jamboreefara (3)
Þátttakendur hafa nú fyllt út heilsufarsskýrslu í samráði foreldra sína og skilað henni til fararstjórnar. Þar var farið fram á ítarlegar upplýsingar um lyfjatöku og sjúkdóma eða ofnæmi til þess að fararstjórnin hefði glöggva mynd af heilsufarsástand skátanna og ef skátinn þarf að leita til læknis á mótinu. Við viljum líka vekja athygli á því að ef einhvað breytist varðandi heilsu þátttakenda fram að móti eða ykkur finnst að einhverjar upplýsingar gætu komið að góðum notum að láta okkur vita.
Nú höfum við öll tryggt það að við séum örugglega sprautuð fyrir því sem krafist er þegar farið er til framandi landa. Þetta eru t.d stífkrampa- og barnaveiki, lifrarbólga 1 og mænusótt.
Sólbruni
Margir Íslendingar hafa einhvertíma sólbrunnið í útlöndum og kannast þá við þá kvöl sem því fylgir. Margir átta sig þó ekki á því að sólin getur valdið fleiri óþægindum og veikindum. Þar má nefna; niðurgang, ógleði, svima, slen, þreyta ofl. Þetta viljum við fyrirbyggja með notkun sólarvarna, sólgleraugna og sólhatta. Munið að þið náið ykkur örugglega í smá brúnku í ferðinni og þurfið því ekki að sólbrenna á fyrsta degi.
Vatnið
Okkur hefur verið bent á að drekka ekki vatn úr krananum á mótinu. Kaupa frekar vatn á flöskum. Ýmis fyrirbyggjandi lyf eru til á markaðnum til að bæta starfsemi þarmanna og magans í framandi umhverfi. Við viljum benda á að þau lyf eru oft dýr en gera mikið gagn. Þau fást í næsta apóteki eða heilsubúðum. Dæmi um lyf af þessu tagi er eitt sem ber nafnið: Acidophilus+. Framleiðandi er fyrirtækið Futurebiotics.
Hreinlæti
Annað vandamál sem hefur komið upp á í ferðum sem þessum er þegar skátarnir þrífa ekki mataráhöldin sín og skordýr og aðrar örverur fá sér að snæða af matardiskunum. Við þurfum að hugsa vel um þetta því að í Chile er nóg af sníkjudýrum og eina leiðin til að koma í veg fyrir sýkingar af þeirra völdum er HREINLÆTI. Við viljum hvetja alla þátttakendur í ferðinni til að baða sig daglega og skipta um föt reglulega . Það eru sturtur á svæðunum. Köld sturta hressir og kætir!
Nokkrir punktar frá Helga Guðbergssyni, - lækninum sem bólusetti okkur flest:
Muna að sjóða allan mat. Köld borð, kaldar súpur, kaldar sósur o.þ.h. geta valdið veikindum.
Ekkert hrámeti; kræklinga, skelfisk eða eitthvað þvíumlíkt.
Ekki hrásalat á veitingastöðum. Aðeins verksmiðjuinnpakkað.
Ekki djús úr könnum.
Nota ekki klaka nema maður viti hvaðan vatnið í hann er tekið.
Drekka og tannbursta sig úr „keyptu" vatni.
Ekki fara með áhöld úr kjöti í grænmeti nema að þrífa þau mjög vel á milli.
Borða ekki ís í formum. Aðeins innpakkaða íspinna.
Grundvallarreglurnar þrjár til heilbrigðs lífs:
I. Muna að drekka nóg
Aldrei verður of oft ítrekuð nauðsyn þess að drekka mikið og oft á sólríkum stöðum þar sem fólk er á fullu. Sá sviti sem við losum okkur við á hverjum degi skiptir lítrum þegar allt er talið. Svitinn er kælikerfi líkamans og þegar hann er farinn út ofhitnar líkaminn og þá finnum við fyrir við svima, þreytu, vanlíðan og hita. Þess vegna þurfum við að drekka enn meira en við losum okkur við í gegnum svitann og þurfum að muna að taka með okkur vatnsflösku í dagskrá og á viðburði eins og opnunarathöfnina o.þ.h.
II. Muna að sofa nóg
Við munum fara eldsnemma á fætur á morgnanna og í rúmið milli ellefu og tólf á kvöldin. Sé fólk þreytt er um að gera að fara fyrr í háttinn. Þetta er hátt í 18 klukkustunda „vinnudagur" í krefjandi umhverfi þar sem við erum með flest skilningarvit okkar á fullu við að upplifa allt í kringum okkur. Þetta er mjög mikið álag til viðbótar við hitastigið, sólina og svitann. Hver og einn finnur það best á sér hvernig honum líður og verður að bregðast við því á réttan hátt. Við þurfum að fá okkar hvíld ef við ætlum að ná að tóra út mótið án þess að verða lasin.
III. Muna að borða nóg
Sama hér. Við þurfum á mikilli orku að halda til að halda fullum krafti allan daginn. Allt sem heitir kalóríur eru því vinir okkar og um að gera að neita þeirra reglulega. Þó skal þess gætt að fylla ekki magann af nammi og gosi í stað almennilegs matar. Við þurfum traustan grunn til að byggja á því vinnslan er í botni!
Læknisþjónusta
Á mótinu verður góð læknisþjónsuta ef einhver skyldi vera svo óheppinn að þurfa á slíkri þjónustu að halda á meðan á því stendur. Á meðan dvalist er í Santíago verður treyst á þá almennu læknisþjónustu sem í boði er.
Nafnskírteini
Fararstjórn mun láta útbúa nafnskírteini sem verða afhent við brottför í Leifsstöð, sem innihalda eftirfarandi upplýsingar:
1. Nafn, heimili, blóðflokkur, fd. ár og þess háttar.
2. Mynd af viðkomandi.
3. Neyðarsímanúmer hjá Bandalagi íslenskra skáta.
 |  |  |
Uppfært: 12. desember, 1998.© 1998 - Netnefnd BÍS - Guðmundur Jónsson
Afritun án heimildar er leyfð ef Skátavefsins er getið með endurbirtingu efnis. Reproduction of material without permission authorized, giving credit to "www.scout.is". |
|---|
|