Fjárhagsáætlun Handbók Jamboreefara (2)
Mörgum hefur verið spurn um það hvernig verð ferðarinnar var fundið út. Svo lítill hópur sem þessi gerir allan kostnað mjög óhagstæðan fyrir hvern einstakling þar sem sameiginlegur kostnaður leggst mun þyngra á hvern og einn heldur en ef hópurinn hefði verið stærri Þrátt fyrir það höfum við ekki farið fram úr upphaflegri fjárhagáætlun sem gerð var fyrir tveimur árum. Hér á eftir fer kostnaðarskipting fyrir hvern einstakling:
Kostnaðarliður Verð
Flugfargjald 135.000,-
Mótsgjald 50.000,-
Matur í Chile í 5 daga 7.500,-
Ferðir í Chile 4.000,-
Gisting í Chile 10.000,-
Dagskrá í Chile 5.000,-
Þjónustukostnaður BÍS 5.000,-
Kostnaður vegna fararstjórnar 20.000,-
Sameiginlegur kostnaður 7.000,-
Ófyrirsjáanlegur kostnaður 6.300,-
Samtals 249.800,-
Viðskiptaaðilar.
Þegar unnið er að undirbúningi ferðar eins og þessarar þarf margar hendur til að gera svona ævintýri að veruleika. Chileferð skáta hefur þurft að leita til margra aðila, einstaklinga sem fyrirtækja, og hefur sett sig í viðskiptasambönd við suma af þessum aðilum. Helstu viðskiptaaðilar þessarar ferðar eru í dag Landsbjörg, Skátabúðin, Regatta-búðin, Skátasamband Reykjavíkur og fleiri aðilar sem við kunnum okkar bestu þakkir fyrir veittan stuðning.
Fjáraflanir
Frá upphafi var lagt upp með það að fjáraflanir væru á vegum þátttakendanna sjálfra og skátafélaga þeirra. Margir hafa staðið sig með eindæmum vel í þeim efnum og standa nú með pálmann í höndunum. Hinir þurfa að verða sér út um fjármagn með öðrum hætti. Þar fyrir utan hefur fararstjórn haft samband við ýmsa aðila varðandi styrki.
Styrkir
Fararstjórn hefur haft samband við töluverðan fjölda fyrirtækja auk bæjarfélaga varðandi styrki til ferðarinnar. Niðurstaðan hefur verið misjöfn því vegna smæðar hópsins hefur þetta ekki þótt vænlegur auglýsingakostur. Þó hafa sumir aðilar sýnt okkur stuðning sinn í verki og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Þeir helstu sem hafa hlaupið undir bagga með okkur eru: Landsbjörg, Skátabúðin, Skátafélagið Ægisbúar, Íslandsbanki, J.S. Helgason heildsala, Regattabúðin, Nýherji, Thorarensen lyf og Skátasamband Reykjavíkur.
Gjaldeyrir
Eftir miklar bollaleggingar eru það tilmæli fararstjórnar að þátttakendur hafi með sér USD 100,- í gjaldeyri sem ætti að duga fyrir þeim varningi og öðrum kostnaði á ferðalaginu til Chile og á leiðinni á mótsstað í Chile. Að öðru leyti eru það tilmæli fararstjórnar að allir þátttakendur hafi meðferðis kreditkort með hæfilegri úttektarheimild. Er ástæðan sú að reynslan sýnir að kreditkort eru að jafnaði öruggasti greiðslumátinn á ferðalögum og minni hætta á að fé glatist en þegar eingöngu er stuðst við reiðufé. Eftir því sem næst verður komist eru VISA og EUROCARD kort jafngild í Chile. Auk þess sem flestar verslanir, veitingastaðir og þjónustuaðilar taka við greiðslum með korti er hægt að taka út reiðufé með kortum bæði á mótinu sjálfu og svo í bönkum bæði á flugvöllunum sem og í Santiago. Þar sem þátttakendur eru ekki orðnir 18 ára og fjárráða geta þeir ekki fengið sitt eigið kort heldur þurfa þeir að fá svokölluð aukakort á kortareikning foreldra/forráðamanna sinna. Sótt er um slík kort í viðskiptabanka viðkomandi foreldris/forráðamanns. Um slík kort gilda að jafnaði allar sömu reglur og um kort foreldris/forrráðamanns. Ef þátttakendur geta ekki orðið sér út um kreditkort er mælt með því að þeir hafi farareyri sinn í ferðatékkum en almennt eru þeir ekki jafn handhægir og kreditkort en mun öruggari en reiðufé.
Vasapeningar
Ein af þeim spurningum sem fararstjórnin er oft spurð um er hvað þátttakendur eigi að hafa með sér mikinn farareyri. Þetta er alltaf viðkvæmt mál, því að sitt sýnist hverjum. Fararstjórn vill reyna að gera grein fyrir þeim liðum sem hugsanlega gætu krafist fjárútláta.
- Á mótssvæðinu er verslun sem selur sælgæti og gos.
- Á mótssvæðinu er minjagripaverslun.
- Í dvölinni með Chilebúunum eftir mót gæti komið sér ágætlega að eiga smá pening til að geta skellt sér á kók og hamborgara og annað munngæti svona annað slagið. Það er þó rétt að taka það fram að morgunmatur, hádegis- og kvöldmatur þessa daga eru innifaldar í verði ferðarinnar.
- Vilji einstaklingar versla eitthvað í Santiago eða á flugvöllunum er það undir þeim komið og þeir verða að gera ráð fyrir peningum í slíkt.
Fararstjórn bendir á að þátttakendur sjálfir og foreldrar/forráðamenn þeirra eiga auðveldast með að meta fjárþörf hvers og eins. Það er hins vegar mat farastjórnar að gjaldeyrir að jafngildi 27.000 íslenskum krónum þ.e. um 1.500 krónur á dag að jafnaði, eigi að duga þátttakendum til að standa straum af þeim aukakostnaði sem þeir kunna að verða fyrir.
Þátttakendur eru sérstaklega minntir á að…
ÞAÐ ÞARF LÍKA AÐ BORGA KREDITKORTAREIKNINGINN! J
Greiðslukort
Kreditkort eru víða notuð í Chile og algengur greiðslumáti í Santíago eins og áður er getið. Töluvert er um hraðbanka í Santíago þar sem hægt er að taka út reiðufé, sérstaklega frá VISA en Eurocard - bankar eru nokkuð færri. Jafnframt er hægt að taka út reiðufé með kreditkortum í bönkum. Debetkortin er aðeins hægt að nota í stærri borgum. Það er því líklega hægt að taka út reiðufé með debetkortum í Santiago en við teljum það mjög óráðlegt að treysta á það eingöngu.
TIL AÐ GREIÐA MEÐ KREDITKORTUM Í CHILE
ÞARF AÐ FRAMVÍSA VEGABRÉFI.
Geymsla á verðmætum
Það er rétt að benda þátttakendum á það, að fararstjórn getur geymt verðmæti eins og t.d. vegabréf, ferðatékka, kreditkort eða annan gjaldeyri í öruggum hirslum á meðan á mótinu stendur. Við viljum hvetja alla til að nýta sér þessa þjónustu til þess að allir séu nú alveg öruggir með að glata ekki verðmætum. Í Santiago hins vegar mun hver og einn þurfa að sjá um geymslu á sínum verðmætum. Vakin er athygli á því að nauðsynlegt er fyrir þátttakendur að verða sér úti um innanklæðaveski til að geyma verðmæti í meðan á ferðalaginu stendur, þá sérstaklega í Santíago þar sem töluvert er um vasaþjófa. Jafnframt er bent á það að þátttakendur þurfa að hafa vegabréf sitt við hendina þá daga sem þeir eru í Santíago.
Tryggingar
Ítrekað er að þátttakendur eru ekki tryggðir sérstaklega af Bandalagi íslenskra skáta á meðan á ferðinni stendur og fara í ferðina á eigin ábyrgð. Hvorki Bandalag íslenskra skáta né farastjórn eða sveitarforingjar verða sótt til saka eða krafin um bætur vegna líkamlegs eða fjárhagslegs tjóns sem þátttakandi kann að verða fyrir á meðan á ferðinni stendur eða í tengslum við hana. Af þessum sökum er mjög mikilvægt að allir þátttakendur hugi sérstaklega að tryggingum sínum. Algengt er að innifalið í almennum heimilistryggingum séu allar þær tryggingar sem þátttakandi þarf að hafa en rétt er að athuga það sérstaklega. Þær tryggingar helstar sem þátttakendur þurfa eru eftirtaldar: ferðaslysatrygging (dánar- og örorkubætur), sjúkratrygging, ferðarofstrygging, samfylgd í neyð, farangurstrygging, forfallatrygging, greiðslukortatrygging og ábyrgðartrygging vegna tjóns þriðja aðila. Athygli er vakin á því að í flestum tilfellum eru einhverjar almennar takmarkanir á bótaskyldu tryggingafélagsins s.s vegna tjóns ssem beint eða óbeint leiðir af fjallaklifri, bjargsigi og fleiri íþróttum sem skátar kunna að stunda. Ef svo er um þær tryggingar sem þátttakandi hefur er vert að reyna að fá viðkomandi tryggingarfélag til að falla frá slíkum takmörkunum og fá það þá skriflegt inn á tryggingarskírteinið.
 |  |  |
Uppfært: 12. desember, 1998.© 1998 - Netnefnd BÍS - Guðmundur Jónsson
Afritun án heimildar er leyfð ef Skátavefsins er getið með endurbirtingu efnis. Reproduction of material without permission authorized, giving credit to "www.scout.is". |
|---|
|