|
Sögulegt yfirlit m.t.t. fyrri heimsmóta skáta.
Sutt ágrip af undirbúningi ferðarinnar. Í upphafi árs 1998 var skipuð fararstjórn til að sjá um undirbúning og framkvæmd ferðarinnar. Hún hófst þegar handa við undirbúning og þann 12. febrúar var haldinn undirbúningsfundur með þátttakendum í Skátahúsinu við Snorrabraut. Á fundinum kynnti nýskipuð fararstjórn sig fyrir fundarmönnum og farið var lauslega yfir þau verkefni sem framundan. voru. Jafnframt var farið yfir það verkefni sem beið fararstjórnar og horft á myndband frá síðasta heimsmóti í Hollandi 1995 sem og kynningarmyndband frá mótsstjórn heimsmótsins í Chile. Skýrlega kom í ljós að mikill hugur var í fólki og mikill spenningur að takast á við ferðina. Hópurinn hittist einnig í útilegu að Úlfljótsvatni helgina 21.-23. ágúst. Hafði ferðinni verið heitið í Arnarsetur en á síðustu stundu var ákveðið að fara austur að Úlfljótsvatni og aðstoða við þökulagningu sem var þá í fullum gangi sem liður í undirbúningi fyrir landsmót skáta 1999. Fararstjórn hefur, þegar þetta er skrifað gefið út þrjú tölublöð af Picarquín, fréttabréfi hópsins og er stefnt á frekari útgáfu. Fararmerkið hannaði Guðni Gíslason. Foreldrafundur var haldinn 1. nóvember í skátahúsinu og var vel mætt. Þá hittist hópurinn eina nótt 27. til 28. nóvember í skátaheimili Ægisbúa og fóru fulltrúar hans þá m.a. í viðtal á Rás 2. Kynning á fararstjórn og sveitarforingjum.
30 ára yfirlögfræðingur við embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins. Starfar með skátafélaginu Ægisbúum og Hjálparsveit skáta í Reykjavík og situr auk þess í stjórn Bandalags íslenskra skáta. Heimasími: 561 6138. Vinnusími: 550 8843 Netfang: bragi.bjornsson@skattur.is
25 ára starfsmaður Sólheima í Grímsnesi. Starfar með skátafélaginu Vífli sem aðstoðarfélagsforingi og hefur gegnt þar hinum ýmsu trúnaðarstörfum. Hefur einnig starfað mikið að foringjaþjálfun fyrir hönd BÍS, er starfandi í Hjálparsveit skáta í Garðabæ og er leiðbeinandi í skyndihjálp. Tók þátt í World Jamboree í Hollandi 1995 sem aðstoðarsveitarforingi. Heimasími: 565 7035 Vinnusími: 486 4430 Netfang: ingibjorgg@hotmail.com
23 ára guðfræðinemi. Starfar með skátafélaginu Ægisbúum sem gjaldkeri stjórnar, sveitarforingi dróttskátasveitarinnar d.s. Búrjó auk þess sem hann sá um útilífsskóla félagsins síðastliðið sumar. Situr einnig í foringjaþjálfunarráði BÍS. Heimasími: 552 4831 Netfang: sigfusk@hi.is
24 ára nemi í Viðskiptaháskólanum í Reykjavík og starfsmaður Gallup í Íslandi. Hefur starfað með skátafélaginu Skjöldungum sem sveitarforingi, í stjórn félagsins o.fl. Situr í starfsráði BÍS. Hefur töluvert starfað í alþjóðlegu skátastarfi og var m.a. starfsmaður alþjóðlegrar skátamiðstöðvar í Kandersteg í Sviss í 3 mánuði árið 1996. Tók þátt í World Jamboree í Suður - Kóreu 1991 sem almennur þátttakandi. Heimasími: 5813839 Símboði: 845 4843 Netfang: sivu@vhr.is ![]() |