Skátavefurinn - www.scout.is
Lokabréf til Chilefara frá fararstjóra

Kæri Jamboree-fari


Bragi Björnsson, fararstjóri
Nú styttist óðum í það að þú hefjir för þína á 19. heimsmót skáta í Picarquín í Chíle. Eins og þú veist er þema mótsins að þessu sinni “Building peace together” sem þýða mætti á íslensku ,,stuðlum að friði saman". Hugmyndin með þema mótsins er að þú sem fulltrúi þinnar þjóðar leggir þitt lóð á vogaskálarnar til að stuðla að friði í heiminum. Friður er ekki einungis andstæða styrjaldar heldur einnig jákvætt viðhorf gagnvart öllum mönnum og samfélögum. Friður á rætur sínar að rekja til réttlætis sem hindrar ofbeldi, fátækt, fordóma og tryggir öllum möguleika á menntun, heilbrigðisþjónustu og húsnæði. Heimsmótið á að vera ákall ungs fólks hvaðanæva úr heiminum um frið til handa öllu mannkyni. Með það að leiðarljósi ætlum við skátar að sýna öllum jarðarbúum að hægt sé að starfa saman í bróðerni og að við séum að leggja okkar af mörkum til að stuðla að raunverulegum friði á jörðinni. Er þessi boðskapur verðugt íhugunarefni við lokaundirbúning þinn fyrir ferðina og jólin.

Með bréfi þessu er lokaútgáfa handbókar Jamboree-fara 1998. Nokkrar breytingar hafa orðið á henni frá bráðabirgðaútgáfunni sem send var út fyrir foreldrafundinn þann 1. nóvember s.l. Því ættir þú að kynna þér efni hennar vel. Þar er að finna svör við flestum spurningum þínum og foreldra/forráðamanna þinna varðandi ferðina en ef einhverjar frekari spurningar vakna við lesturinn er alltaf hægt að leita upplýsinga hjá fararstjórninni.

Þann 19. desember verður haldið Jóla-skátaball í Skátahúsinu við Snorrabraut. Viljum við í fararstjórninni hvetja þig til að mæta því þar gefst þér tækifæri til að hitta fararstjórnina og aðra félaga í hópnum í síðasta skipti áður en lagt verður í ævintýraför okkar til Chíle. Ballið hefst klukkan 21.30 og stendur fram eftir kvöldi.

Að lokum viljum við í fararstjórninni óska þér og fjölskyldu þinni gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Með skátakveðju,

Bragi Björnsson,
fararstjóri.

Auglýsing
Netnefnd BÍS - GJ