Skátavefurinn - www.scout.is
Chilefararnir kynntir og ....


Þið þarna niðri - ekki skjálfa svona, þið hristið okkur í sundur!
Það eru ekki nema rúmir tuttugu dagar þangað til þau fara á alþjóðamót skáta í Chile. Skátavefurinn, sem lætur ekkert fram hjá sér fara, eins og hinum eina sanna ríkisfjölmiðli er skylt að gera, leit við þar sem þau voru að undirbúa ferðina og fékk þau til þess að stafla sér upp fyrir myndatöku. Við höfum grun um að þau séu að stefna að "pakka-ferð" og ætli að ferðast sem ódýr bögglapóstur.


Við sögðum þetta - jæja, við ferðumst þá bara sem almennir farþegar!
Við kynnum hérna hvern og einn þátttakanda með nafni, mynd og netfangi, þannig að þið getið bara sent þeim heillaóskir áður en þau leggja af stað. Og svo erum við hérna með eina stutta frétt frá útilegu þeirra í Ægisbúaheimilinu, en við á Skátavefnum fylgjumst vel með öllu, eins og áður sagði.

Á næstu síðu eru myndir af hverju
og einu fyrir sig - skoðið þá síðuna "Þau fara á heimsmótið".


Hér er fréttin frá "Bebbu", Bergþóru Ólöfu Björnsdóttur, fréttasnápi okkar á Suðurnesjum:

.... Bleikir sokkar með grænum röndum!


Bergþóra Ólöf Björnsdóttir,
eða BEBBA fréttasnápur
Við mættum kl.20:00 út í skátahús (við týndumst a.m.k. inn það leyti). Þá vorum við bara að kjafta og svoleiðis og líka í myndatöku. Það var voða gaman og líka hlegið mikið. En eftir myndatökuna fórum við í leiki og lærðum líka nöfnin hvort á öðru (við komumst að því að flest okkar heita frekar óvenjulegum nöfnum).

Síðan þurftum við að fara að koma okkur að verki! Okkur var skipt í hópa, og nokkrir fóru að sauma merki á klúta (fyrir mótsstjórn), aðrir að mála fararfánann, og hinir að syngja, og og læra jamboreesönginn á spænsku. Þetta tók allt sinn tíma, og þegar við vorum búin að vera að þessu dálítið lengi, fórum við öll inní sal, og Bragi var með fyrirlestur (man ekki alveg um hvað - held að það hafi verið um farangurinn!!).

Svo um kl 2 horfðum við á video (fræðslumynd um flugvél ("Flughræðsla" eða eitthvað álíka (grínmynd))). Eftir þá mynd voru sumir sem nenntu ekki að fara að sofa, þannig að þeir horfðu á einhverja mynd um geimveruhund, eða eitthvað álíka asnalegt (ég nennti ekki að horfa á hana, þannig að ég fór bara að kjafta við vinkonu mína). Svo í kringum 5-6 leytið held ég að flestir hafi verið sofnaðir (ég veit það náttúrulega ekki pottþétt, því ég var sofandi!).


Hér eru Chilefararnir saman komnir ópakkaðir (á myndina vantar Sigurð Má)
Um kl 9 vakti Bragi okkur og við "fórum á fætur" (a.m.k. opnuðum við augun! (flest okkar)). Um kl.10 fóru Bragi og Helga Rós á Rás 2 í viðtal. Þá áttum við öll þá að fara fara inn í bílinn hans Sigfúsar og hlusta á þau í útvarpinu, en við nenntum ekki að klæða okkur strax, þannig að Sigfús skrapp eitthvað og reddaði okkur útvarpstæki. Jæja, svo drifu sig allir í sund, og var það voða gaman held ég, ég komst ekki). Svo þegar fólkið var búið í sundi, fengum við útbúnaðinn sem hafði verið keyptur handa okkur, eða við fengið gefins (Bragi var sjálfsagt með einhverja fyrirlestra inn á milli þessarar sögu, en ég man ekki alveg tímasetninguna á þeim!).

Annars held ég að þetta sé bara allt saman í grófum dráttum. Það var alveg geðbilað gaman og þetta eru ýkt frábærir krakkar. - Skátar eru fyndnasta, gáfaðasta, frábærasta, æðislegasta, geðveikasta (í góðri merkingu) og bara... skemmtilegasta fólk í heimi.

LOVE,

BEBBA

Bergþóra Ólöf Björnsdóttir,
Garði.

Auglýsing
Netnefnd BÍS - GJ