Chilefarar hittast á föstudaginn
Til að leggja lokahönd á undirbúning ferðar okkar á alheimsmótið í Chile verður haldin útilega í skátaheimili Ægisbúa. Skátaheimilið er á efri hæð íþróttahúss Hagaskóla við Neshaga, skammt frá Háskólabíói og Neskirkju. Útilegan hefst í skátaheimilinu klukkan 20.00 föstudaginn 27. nóvember n.k. og stefnt er að því að slíta henni um klukkan 15.00 daginn eftir. Þá drífa allir sig heim og fara að lesa undir jólaprófin!
Þetta segir m.a. í nýjasta tölublaði Chile-fara, en það var að koma út. Undirbúningur hefur gengið mjög vel að sögn Sigurðar Úlfarssonar, eins af fararstjórum hópsins, en um helgina verður farið yfir það helsta ásamt því að myndatökur fara fram. þakklætisgjafir búnar til og hlið og svæði sveitarinnar hannað. Einnig verða veittar nýjustu upplýsingar frá Chile og afhentur sameiginlegur útbúnaður sem keyptur hefur verið eða okkur verið gefinn. Loks verður þeim sem það vilja boðið upp á að fararstjórn fari yfir þann búnað sem þeir ætla að taka með sér til Chile.
En lesið allt um Chile-fara, smellið bara á Word 8.x útgáfuna af nýjasta fréttabraéfinu og þið fáið blaðið beint til ykkar. Það verður samt að viðurkennast, að skráin er dálítið - mikið - þung og gæti tekið nokkrar mínútur að sækja hana.
|