Skátavefurinn - www.scout.is
Alheimsmót skáta í Chile nálgast

Picarquín - 2. tölublað Chilefara Það styttist óðfluga í að íslenskir skátar leggi af stað til Chile til þess að taka þátt í alþjóðlega skátamótinu sem þar verður haldið um áramótin. Í lok síðasta mánaðar kom út 2. tölublað af Picarquín, fréttablaði þeirra Chilefara og getið þið sótt það hérna neðst á síðunni (í zip-formi), en það er annars vegar í Word-2 útgáfu og einnig í Word-8.

Chilefarar slappa af fyrir ljósmyndarann

Zip Word 2.0 - 78-KB Zip Word 8.0 - 99-KB Um næst-síðustu helgi fóru þeir í útilegu upp á Úlfljótsvatn til þess að skipuleggja undirbúning frekar og til þess að við að þökuleggja tjaldsvæðið fyrir landsmótið næsta sumar. Skátavefurinn var þar eins og alls staðar annars staðar sem eitthvað markvert er um að vera (he-he) og tók þá þessa mynd (sjá hér að ofan) af hópnum við túnþökuvinnuna. Þetta er efnilegur hópur undir stjórn Braga Björnssonar, aðalfararstjóra og Sigfúsar Kristjánssonar, aðstoðarfararstjóra og Ingibjargar Guðmundsdóttur og Sigurðar Úlfarssonar, sveitarforingja. - Góða ferð krakkar!

Auglýsing
Netnefnd BÍS - GJ