Picarquín - Fréttabréf Jamboreefara
Þeir fjölmörgu skátar sem eru að fara á alheimsskátamótið í Chile hafa nú gefið út fréttabréf. Þar segir að aðeins 170 dagar séu þangað til lagt verði af stað í hina löngu för, alla leið til Chile.
Hópurinn hefur fundið lausn á því tómarúmi sem verður helgina 21. - 23. ágúst, þar sem Rolling Stones hafa frestað ferð sinni til landsins. Jamboreefarar ætla einfaldlega að halda í útilegu og hafa sína eigin tónleika um kvöldið að hætti skáta.
Þið getið lesið nánar um þetta í fréttabréfinu með því að smella á annað hvort Word 8.0 eða Word 2.0 útgáfuna. Fréttablaðið mun þá hlaðast niður til þín og þú lest það bara í Word-ritvinnslunni á tölvunni þinni, nú eða prentar hana út fyrir vini og vandamenn.
Við óskum jamboreeförum til hamingu með frábært fréttabréf og góðs gengis við undirbúning og væntanlegt ferðalag. Gjörið svo vel og náið í fréttabréfið hér að neðan og eins getið þið heimsótt heimasíðu Alheimsskátamótsins í Chile 1999.
 |  |  |
Uppfært: 28. júlí, 1998.Netnefnd BÍS - GJ |
|---|
|